Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 126 þúsund í maímánuði eða um 39 þúsund færri en í maí árið 2018, samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Fækkun milli ára nemur því 23,6 prósent.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ferðamálastofu.
Bandaríkjamenn voru fjölmennastir í maí eða fjórðungur brottfara og fækkaði þeim um 38,7 prósent milli ára. Brottfarir í maí í ár eru álíka margar og í maí árið 2016.
Í tilkynningunni kemur fram að fækkun hafi verið alla mánuði frá áramótum, í janúar fækkaði brottförum um 5,8 prósent, í febrúar um 6,9 prósent, í mars um 1,7 prósent og í apríl um 18,5 prósent.
Frá áramótum hafa 705 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sem er 11,2 prósent fækkun miðað við sama tímabil í fyrra.
Íslendingar fækka einnig ferðum
Þá segir að af einstaka þjóðernum hafi flestar brottfarir í maí verið tilkomnar vegna Bandaríkjamanna eins og fram hefur komið. Þjóðverjar voru í öðru sæti hvað fjölda varðar eða níu þúsund talsins og fækkaði þeim um 23,8 prósent milli ára og Bretar í þriðja sæti eða tæplega níu þúsund og fækkaði þeim um 16 prósent.
Þar á eftir fylgdu síðan brottfarir Pólverja, Kanadamanna, Frakka, Kínverja, Norðmanna, Svía og Dana.
Um 57 þúsund Íslendingar fóru utan í maí í ár eða 9,3 prósent færri en í maí 2018. Frá áramótum hafa 185 þúsund Íslendingar farið utan eða 1,8 prósent færri en á sama tímabili í fyrra.