Samkvæmt uppfærðri farþegaspá Isavia, sem birt var í dag, mun fjöldi erlendra farþega sem koma til Íslands verða 1.927 þúsund á þessu ári. Það eru 388 þúsund færri farþegar en komu hingað til lands í fyrra, sem var metár.
Til samanburðar voru allir íbúar landsins samanlagt 358.780 talsins í lok mars síðastliðnum. Því mun ferðamönnum sem sækja Ísland heim fækka um rúmlega mannfjölda landsins milli áranna 2018 og 2019.
Þá mun skiptifarþegum sem koma til Íslands fækka um 43 prósent milli ára, úr tæplega 3,9 milljónum í tæplega 2,2 milljónir.
Í tillkynningu frá Isavia segir að farþegaspáin sé unnin út frá upplýsingum um afgreiðslutíma sem flugfélögin hafa tryggt sér. „Farþegaspáin byggir á upplýsingum úr kerfum Isavia, til viðbótar við þær fréttir sem borist hafa af flugfélögum. Spáin er að því leyti unnin með öðrum hætti en áður.
Isavia telur hins vegar að fyrir liggi nægar upplýsingar til að gefa út uppfærða farþegaspá og svara þannig ákalli markaðarins. Breytist forsendur verður þessi spá uppfærð.“
Þar segir einnig að fjölgun farþega um Keflavíkurflugvöll hafi verið afar hröð á síðustu árum og í sumum tilvikum hafi það kallað á uppfærða farþegaspá þegar liðið hefur á árið, hvort sem farþegum hafi fjölgað eða fækkað. „Í lok mars hætti WOW air, einn stærsti viðskiptavinur Isavia á Keflavíkurflugvelli, starfsemi. Þá var ljóst að gera yrði breytingar á farþegaspá fyrir árið 2019. Því til viðbótar hefur verið nokkur óvissa vegna stöðu Boeing MAX flugvéla Icelandair.“