Áfram mikil eftirspurn eftir minni íbúðum

Minni íbúðir eru líklegri til þess að seljast yfir ásettu verði en stærri íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. Minni íbúðir hafa ríflega tvöfaldast í verði á undanförnum áratug á meðan verð stærri eigna hefur hækkað um rúm 70 prósent.

7DM_9563_raw_2114.JPG
Auglýsing

Enn virð­ist mikil eft­ir­spurn vera eftir minni íbúðum hér á landi. Það sem af er ári hafa 24 pró­sent við­skipta með eins eða tveggja her­bergja íbúðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu verið yfir ásettu verði. Aftur á móti voru 84 pró­sent allra íbúða­við­skipta á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í apríl síð­ast­liðnum undir ásettu verði. Það er tals­verð breyt­ing frá því í apríl á síð­asta ári þegar 69 pró­sent íbúða seld­ust undir ásettu verði. Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs.

Íbúðir hafa í auknum mæli selst undir ásettu verði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu

Aðeins 10 pró­sent íbúða seld­ust á hærra verði en ásettu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í apríl síð­ast­liðnum ef miðað er við verð í nýj­ustu fast­eigna­aug­lýs­ingu áður en ­kaup­samn­ing­ur var und­ir­rit­að­ur. Til sam­an­burðar seld­ust 17 pró­sent íbúða yfir ásettu verði í apríl í fyrra. Þá seld­ust um 84 ­pró­sent ­í­búða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í apr­íl­mán­uði undir ásettu verði en í fyrra seld­ust 69 pró­sent íbúða undir ásettu verði í apr­íl.

Þá hafa minnstu íbúð­irn­ar, eins til tveggja her­bergja, það sem af er ári verið að selj­ast í auknum mæli yfir ásettu verði. Alls hafa 24 pró­sent þeirra íbúða selst yfir ásettu verði en 71 pró­sent und­ir. Stærri íbúðir hafa aftur á móti selst í auknum mæli undir ásettu verði en það sem af er ári hafa 7 pró­sent íbúða með fimm her­bergi eða fleiri selst yfir ásettu verði en 85 pró­sent undir því.

Auglýsing

Minni íbúðir hækkað meira í verði

Með­al­sölu­tími minnstu íbúð­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur verið að stytt­ast á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en lengj­ast ögn á öðrum íbúðum Á tíma­bil­inu febr­úar til apríl á þessu ári var hann 79 dagar sam­an­borið við 92 daga í júlí til sept­em­ber í fyrra. Með­al­sölu­tími ann­arra íbúða hefur aftur á móti farið örlítið hækk­andi frá því í fyrra­haust. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var með­al­sölu­tími íbúða 100 dagar í apríl sam­an­borið við 85 daga í sept­em­ber í fyrra.

Mynd: ÍbúðalánasjóðurÞá hafa verð minnstu íbúð­anna, eins til tveggja her­bergja hækkað mest að með­al­tali und­an­farin ára­tug Ef horft er aftur til árs­ins 2012 hafa eins til tveggja her­bergja íbúðir ríf­lega tvö­fald­ast í verði á meðan verð stærri eigna (íbúða með fimm her­bergi eða fleiri) hefur að með­al­tali hækkað um 71 pró­sent. 

Ef hins vegar er horft til síð­ast­lið­inna þriggja ára hafa stærri íbúðir hækkað ívið meira en þær minni eða um 38 pró­sent sam­an­borið við 32 pró­sent hækkun á þriggja til fjög­urra her­bergja íbúðum og 36 pró­sent hækkun á eins til tveggja her­bergja.

12 mán­aða hækk­un­ar­taktur íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu farið aftur vax­andi

Árs­hækkun vísi­tölu íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mæld­ist í apr­íl­mán­uði 4,7 pró­sent, sam­an­borið við 4,3 pró­sent í mars og 3,7 pró­sent í febr­ú­ar, og hefur því farið ögn hækk­andi síð­ustu mán­uð­i. Í skýrslu Íbúð­ar­lána­sjóðs kemur fram að ef horft er til ein­staka hækk­ana milli mán­aða má þó sjá að verð hefur hækkað að með­al­tali um 0,4 pró­sent á milli mán­aða á und­an­förnum 12 mán­uðum og er það nán­ast sami hækk­un­ar­taktur og síð­ustu 12 mán­uð­ina þar á und­an.

Hins vegar mæld­ust mán­að­ar­legar hækk­anir að með­al­tali 1,7 pró­sent frá apríl 2016 til apríl 2017. Vísi­tala ásetts verðs, sem reiknuð er af hag­deild, hefur á und­an­förnum 12 mán­uðum einnig hækkað að með­al­tali um 0,4 pró­sent á milli mán­aða, sam­an­borið við 0,6 pró­sent með­al­hækkun síð­ustu 12 mán­uð­ina þar á undan og 1,6 pró­sent hækkun að með­al­tali frá apríl 2016 til apríl 2017. Árs­hækkun vísi­tölu ásetts verðs mæld­ist í maí­mán­uði um 5,4 pró­sent,

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent