Landsréttur staðfesti í dag að Byko hafi framið alvarleg brot á samkeppnislögum. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hafði talið 65 milljóna króna sekt hæfilega en Héraðsdómur Reykjavíkur hækkaði sekt Byko í 400 milljónir. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að sekt Byko skyldi vera 325 milljónir króna.
Í dómi Landsréttar segir meðal annars að þegar brot Byko eru „metin heildstætt [verði] að leggja til grundvallar að um sé að ræða alvarleg brot sem beinast gegn mikilsverðum hagsmunum neytenda. Brotin voru framin af ásetningi.“
Aðdragandi málsins er sá að í maí 2015 komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Byko hafi brotið gegn samkeppnislögum og EES-samningnum með umfangsmiklu ólögmætu samráði við gömlu Húsasmiðjuna.
Var um að ræða verðsamráð á byggingavörum.
Málið hófst þegar Múrbúðin snéri sér til Samkeppniseftirlitsins og gerði grein fyrir tilraunum Byko og gömlu Húsasmiðjunnar til að fá Múrbúðina til að taka þátt í hinu ólögmæta samráði. Taldi Samkeppniseftirlitið að um alvarleg brot væri að ræða og lagði 650 milljóna sekt á Norvik, móðurfélag Byko.
Norvik og Byko kærðu ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála.
Í október 2015 komst nefndin að þeirri niðurstöðu að Byko hefði tekið þátt í ólögmætu verðsamráði og brotið gegn samkeppnislögum. Hins vegar féllst nefndin ekki á að ákvæði EES-samningsins hefðu verið brotin. Einnig taldi nefndin að brot Byko hafi ekki verið jafn alvarleg og Samkeppniseftirlitið lagði til grundvallar.
Taldi nefndin því hæfilegt að lækka sekt Byko úr 650 milljónum í 65 milljónir. Héraðsdómur taldi hins vegar brotin mun alvarlegri og hækkaði sekt Byko að kröfu Samkeppniseftirlitsins. Féllst héraðsdómur einnig á það með eftirlitinu að Byko hefði
brotið gegn banni EES samningsins við samkeppnishamlandi samráði.
Lækkun Landsréttar á þeirri sekt sem ákveðin var í héraði byggði m.a. á því að Landsréttur féllst ekki á það
með Samkeppniseftirlitinu að Byko hefði einnig brotið gegn EES-samningnum.