Nýliðunarbrestur veldur Hafró áhyggjum

Hlýnun sjávar í íslenskri lögsögu er einn áhrifaþátturinn sem Hafró fylgist grannt með.

Mynd: Jakup Kapusnak/Unsplash – umhverfisgrein__2017_11_23-4_1.jpg fiskur sjávarútvegur fiskar afli
Auglýsing

Nýlið­un­ar­brestur er aug­ljóst í nokkrum teg­und­um, í íslenskri lög­sögu, og hefur Haf­rann­sókn­ar­stofn­un, Hafró, miklar áhyggjur af því, af því er fram kom í máli Guð­mundar Þórð­ar­son­ar, sviðs­stjóra botns­jáv­ar­sviðs Hafró, þegar veiði­ráð­gjöf var kynnt í gær. 

Þó Hafró leggi til 3 pró­sent aukn­ingu í þorki, eða 272.411 tonn, þá staðan á ýmsum öðrum stofnum í lög­sög­unni áhyggju­efni. Þannig er afla­mark í ýsu lækkað um 28 pró­sent milli ára.

Ráð­gjöf Haf­rann­sókna­stofn­unar er byggð á vist­kerf­isnálgun innan var­úð­ar­nálg­unar við stjórn fisk­veiða, og er um hana fjallað ítar­lega í gögnum sem fylgja ráð­gjöf hvers árs. 

Auglýsing

Vist­kerf­isnálgun hefur verið skil­greind á margan hátt, en megin stefið er að stjórn nýt­ingar á að tryggja að ekki sé gengið það mikið á vist­kerfið að „gæði þess rask­ist var­an­lega í nútíð og fram­tíð“ eins og segir í umfjöllun Hafró. 

Vist­kerf­isnálgun á að leiða til sjálf­bærrar nýt­ingar vist­kerf­is­ins, þ.m.t. fisk­veiða. Haf­rann­sókna­stofnun mun á kom­andi árum leggja aukna áherslu á þennan þátt ráð­gjafar og tengja hefð­bund­inni ein­stofna ráð­gjöf sem stofn­unin hefur veitt um ára­bil. 

Í umfjöllun Hafró segir að hlýnun sjávar í íslenskri lög­sögu hafi leitt til breyt­inga á útbreiðslu margra stofna, auk þess sem „suð­rænir flæk­ing­ar“ hafi komið inn í lög­sög­una í meira mæli en áður. „Hækk­andi hita­stig í neðri lögum sjávar vest­an- og norð­an­vert á íslenska land­grunn­inu hefur leitt til breyt­inga á útbreiðslu margra botn­fisk­teg­unda. Teg­undir sem hafa verið við nyrðri mörk útbreiðslu sinnar á Íslands­miðum og yfir­leitt haldið sig í hlýja sjónum sunnan og vestan við land­ið, t.d. ýsa, skötu­sel­ur, langa, keila, sand­koli og lang­lúra, hafa stækkað útbreiðslu­svæði sitt rétt­sælis í vestur og norður eftir land­grunn­inu og á Norð­ur­mið, og í sumum til­fellum hefur útbreiðslu­svæðið flust til (Ólafur S. Ást­þórs­son o.fl. 2007; Jón Sól­munds­son o.fl. 2010; Héð­inn Valdi­mars­son o.fl. 2012). Áður sjald­gæfir suð­rænir flæk­ingar hafa fund­ist í auknum mæli á svæð­inu á und­an­förnum árum, en stofn­stærð og útbreiðsla ýmissa kald­sjáv­ar­teg­unda hefur minnkað í kjöl­far hlýn­un­ar,“ segir meðal ann­ars í umfjöllun Hafró



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent