Hæfnisnefnd, skipuð af Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, hefur metið umsækjendur um starf seðlabankastjóra, og eru fjórir umsækjenda taldir mjög vel hæfir, samkvæmt heimildum Kjarnans.
Það eru Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands, Ásgeir Jónsson, forseti hagfræðideildar Háskóla Íslands, Jón Daníelsson, prófessor við LSE í London, og Arnór Sighvatsson, ráðgjafi seðlabankastjóra og fyrrverandi aðalhagfræðingur og aðstoðarseðlabankastjóri. Allir hafa þeir doktorspróf í hagfræði.
Umsækjendur hafa nú frest til þess að gera athugasemdir við hæfismat nefndarinnar, til 19. júní, sem hæfisnefndin tekur síðan tillit til.
Það er forsætisráðherra sem að lokum skipar seðlabankastjóra, en Már Guðmundsson mun láta af störfum í sumar, eftir tíu ára starf sem seðlabankastjóri.
Samkvæmt heimildum Kjarnans var tólf umsækjendum skipt niður í hæfisflokka; hæfa, vel hæfa, og mjög vel hæfa. Umsækjendur voru upphaflega 16, en eins og fram hefur komið þá dró Benedikt Jóhannesson, fyrrverandi ráðherra og formaður Viðreisnar, umsókn sína til baka, en tveir aðrir umsækjendur, hafa gert það líka, samkvæmt heimildum Kjarnans.
Einn umsækjenda, sem var nemi, uppfyllti ekki skilyrði til að vera hæfur í starfið og er því ekki í flokkun eftir hæfi, hjá nefndinni.
Formaður nefndarinnar er Sigríður Benediktsdóttir, en með henni í nefndinni eru Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, tilnefndur af samstarfsnefnd háskólastigsins, og Þórunn Guðmundsdóttir, hæstaréttarlögmaður og varaformaður bankaráðs, tilnefnd af bankaráði Seðlabanka Íslands.
Umsækjendur um starf seðlabankastjóra, voru eftirfarandi, samkvæmt tilkynningu frá stjórnvöldum:
Arnór Sighvatsson, ráðgjafi seðlabankastjóra
Ásgeir Jónsson, dósent og forseti hagfræðideildar Háskóla Íslands
Ásgeir Brynjar Torfason, lektor við Háskóla Íslands
Benedikt Jóhannesson, fyrrv. fjármála- og efnahagsráðherra
Gunnar Haraldsson, hagfræðingur
Gylfi Arnbjörnsson, hagfræðingur
Gylfi Magnússon, dósent
Hannes Jóhannsson, hagfræðingur
Jón Daníelsson, prófessor
Jón G. Jónsson, forstjóri bankasýslu ríkisins
Katrín Ólafsdóttir, lektor
Salvör Sigríður Jónsdóttir, nemi
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri
Sturla Pálsson, framkvæmdastjóri markaðsviðskipta og fjárstýringar í Seðlabanka Íslands
Vilhjálmur Bjarnason, lektor
Þorsteinn Þorgeirsson, sérstakur ráðgjafi á skrifstofu seðlabankastjóra