Tæplega 140 þúsund Evrópubúar hafa skrifað undir áskorun til íslenskra, norskra, skoskra og írskra stjórnvalda um að laxeldi í opnum sjókvíum verði hætt en frumvarp um fiskeldi er nú til umfjöllunar á Alþingi. Þetta kemur fram í frétt Fréttablaðsins í dag.
Ryan Gellert, framkvæmdastjóri hjá bandaríska útivistarvöruframleiðandanum Patagonia, segir í samtali við Fréttablaðið að nú fylgist náttúruverndarsinnar um alla Evrópu með því hvað sé að gerast á íslenska þinginu. „Þetta er fólk sem er umhugað um brothætt vistkerfi heimsins og það kallar eftir því að útgáfa leyfa fyrir laxeldi í opnum sjókvíum verði hætt og þau leyfi sem þegar hafa verið gefin út verði afnumin í áföngum.“
Auk Patagonia standa NASF, Verndarsjóður villtra laxastofna, og sambærileg samtök í Noregi, Skotlandi og Írlandi að baki undirskriftasöfnuninni. Til stendur að afhenda Alþingi undirskriftirnar áður en atkvæði verða greidd um frumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um breytingar á lögum um fiskeldi, samkvæmt fréttinni.
Annarri umræðu um frumvarpið var frestað á fimmtudaginn síðastliðinn en var það þó rætt á tveimur fundum atvinnuveganefndar á föstudag.
Framsögumaður skynjar að áhyggjur fólks séu víðtækar
Kolbeinn Óttarsson Proppé, framsögumaður meirihluta nefndarinnar í málinu, segist skilja áhyggjur fólks og skynja að þær séu víðtækar. „Einmitt þess vegna höfum við í vinnu nefndarinnar fyrst og fremst lagt áherslu á umhverfisþætti. Við viljum herða sem best allar skrúfur hvað það varðar og hvetja sem mest til umhverfisvænni framleiðslu,“ segir Kolbeinn við Fréttablaðið.
Kolbeinn segir jafnframt að nefndin hafi sett fram þá sýn að eldi á frjóum laxi verði ekki stundað í opnum kvíum. „Það er þangað sem við eigum að stefna. Það þarf að horfa til þess að uppbyggingin verði í skrefum þar sem allra þessara þátta er gætt.“