Eyrún ráðin framkvæmdastjóri Kjarnans

Nýr framkvæmdastjóri hefur hafið störf hjá Kjarnanum.

Eyrún Magnúsdóttir Mynd: Eggert Jóhannesson
Auglýsing

Eyrún Magn­ús­dóttir hefur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri Kjarn­ans. Hún hefur þegar hafið störf.

Eyrún hefur síð­ast­liðin tæp sjö ár haft umsjón með og rit­stýrt Sunnu­dags­blaði Morg­un­blaðs­ins en starf­aði þar áður sem ráð­gjafi árum saman þar sem hún kom að ýmis konar verk­efna­stjórn­un, mark­aðs- og útgáfu­málum og stefnu­mót­un­ar­vinnu. Hún starf­aði einnig á RÚV á árunum 2004 til 2006 og var meðal ann­ars einn þátta­stjórn­enda Kast­ljóss á því tíma­bili. Eyrún er með BA gráðu í hag­fræði með sagn­fræði sem auka­grein. Þá hefur hún lokið meist­ara­námi í stjórnun og stefnu­mótun frá við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands.

Eyrún tekur við starfi fram­kvæmda­stjóra af Þórði Snæ Júl­í­us­syni sem gegnt hefur því sam­hliða rit­stjóra­starfi frá byrjun árs 2018. Hann mun nú ein­beita sér alfarið af rit­stjórn Kjarn­ans.

Auglýsing
„Kjarninn hefur náð að skapa sér sess sem vand­aður mið­ill þar sem áherslan er á gæði og dýpt umfjöll­un­ar. Blaða­menn og aðrir sem að Kjarn­anum standa hafa skýra sýn á hlut­verk sitt við að upp­lýsa og útskýra með almanna­hag að leið­ar­ljósi. Ég er ákaf­lega spennt að takast á við áskor­anir fram­tíð­ar­innar með þessum metn­að­ar­fulla hópi og taka þátt í að þróa Kjarn­ann áfram," segir Eyrún. 

Þórður Snær segir það mik­inn feng að fá Eyrúnu til starfa. „Rekstur Kjarn­ans hefur gengið vel und­an­farin ár og er í góðu jafn­vægi. Stefna okkar sem að honum standa er að halda áfram að vaxa, styrkja stöðu Kjarn­ans í íslensku fjöl­miðlaum­hverfi og auka við þá umfangs­miklu frétta­þjón­ustu sem við veitum les­endum okkar nú þeg­ar. Eyrún hefur mikla reynslu af fjöl­miðla­starf­semi auk þess sem hún býr yfir mennt­un, þekk­ingu og hæfi­leikum til að leiða þann vöxt.“

Kjarn­inn rekur frétta­vef, gefur út dag­­legan morg­un­­póst, stendur að opna umræðu­vett­vangnum Leslist­anum og heldur úti hlað­varps­­þjón­­ustu. Þá gefur Kjarn­inn út Vís­bend­ingu, viku­­rit um við­­skipti, efna­hags­­mál og nýsköp­un, og ensk frétta­bréf.

Kjarn­inn er einnig í sam­­starfi við önnur fjöl­miðla­­fyr­ir­tæki um fram­­leiðslu á frétta­tengdu efni. Helstu sam­starfs­að­ilar eru sjón­varps­stöðin Hring­braut og Birt­ing­ur, vegna útgáfu á viku­lega frí­blað­inu Mann­lífi.

Rit­stjórn­ar­stefna Kjarn­ans er að leggja áherslu á gæði og dýpt í umfjöll­unum sín­um. Að upp­lýsa almenn­ing í stað þess að ein­blína á að skapa vef­um­ferð. Þar er lögð áhersla á umfjöllun um alþjóða­mál, inn­lenda þjóð­mála­um­ræðu, við­skipti, efna­hags­mál, stjórn­mál og loft­lags- og umhverf­is­mál. Lyk­ill­inn að því að gera þetta kleift er Kjarna­sam­fé­lag­ið, þar sem ein­stak­lingar styrkja Kjarn­ann með mán­að­ar­legu fram­lagi. Hægt er að ger­ast styrkt­ar­að­ili hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent