Lögfræðikostnaður vegna orkupakkans rúmlega 16 milljónir

Lögfræðiráðgjafar var aflað frá sex aðilum.

Guðlaugur Þór Þórðarson
Auglýsing

Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur tekið saman upp­lýs­ingar um kostnað vegna aðkeyptrar lög­fræði­ráð­gjafar sem teng­ist þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um stað­fest­ingu ákvörð­unar sam­eig­in­legu EES-­nefnd­ar­innar nr. 93/2017 um breyt­ingu á IV. við­auka (orka) við EES-­samn­ing­inn. 

Sam­tals nemur kostn­að­ur­inn 16,1 milljón króna, að því er fram kemur í yfir­liti frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

„Við höfum kapp­kostað að vanda vel til verka í þessu máli og vegna efa­semd­aradda sem fram komu fengum við fær­ustu sér­fræð­inga á sviði stjórn­skip­un­ar­réttar og Evr­ópu­réttar til að velta við hverjum steini. Við leit­uðum meðal ann­ars til þeirra fræði­manna sem lýst höfðu efa­semdum um að upp­taka þriðja orku­pakk­ans stæð­ist stjórn­ar­skrá. Vegna ráð­legg­inga þeirra ákváðum við að setja laga­lega fyr­ir­vara, sam­kvæmt til­lögu þeirra, til að tryggja að ákvæði orku­pakk­ans sem varða teng­ingar yfir landa­mæri komi ekki til fram­kvæmda nema Alþingi tæki sér­staka ákvörðun um þær og að lok­inni end­ur­skoðun lag­ara­mmans. Jafn­framt þótti mér nauð­syn­legt að fá úr því skorið hvaða þýð­ingu það hefði ef Ísland drægi sig á for­dæma­lausan hátt úr þriðja orku­pakk­anum á loka­stigum máls­ins. Til þess fengum við Carl Bauden­bacher, fyrr­ver­andi for­seta EFTA-­dóm­stóls­ins, sem hefur yfir­burða­þekk­ingu á þessu svið­i,“ segir Guðlaugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra, í til­kynn­ingu.

Auglýsing

Með sam­þykkt til­lög­unn­ar, sem er enn til með­ferðar á Alþingi, er heim­ilað að aflétta stjórn­skipu­legum fyr­ir­vara við ákvörðun sam­eig­in­legu EES-­nefnd­ar­innar um upp­töku svo­nefnds þriðja orku­pakka í EES-­samn­ing­inn, að því er segir í til­kynn­ingu stjórn­valda.

„Álits­gerð­irnar sem utan­rík­is­ráðu­neytið lét vinna í tengslum við þetta mál voru af tvennum toga. Ann­ars vegar voru hafðar uppi efa­semdir um að upp­taka þriðja orku­pakk­ans gæti haft stjórn­skipu­leg álita­mál í för með sér. Þar hefur verið sér­stak­lega vísað til þess að ákvæði reglu­gerðar (EB) nr. 713/2009, um að komið verði á fót sam­starfs­stofnun eft­ir­lits­að­ila á orku­mark­aði (ACER), gæti falið í sér fram­sal á rík­is­valdi sem ekki stæð­ist stjórn­ar­skrá. Til að fá úr því skorið leit­aði utan­rík­is­ráð­herra til fjög­urra sér­fræð­inga: Stef­áns Más Stef­áns­son­ar, pró­fess­ors við laga­deild Háskóla Íslands, og Frið­riks Árna Frið­riks­sonar Hirst lög­fræð­ings; Skúla Magn­ús­son­ar, hér­aðs­dóm­ara og dós­ents við laga­deild Háskóla Íslands, og Dav­íðs Þórs Björg­vins­son­ar, dóm­ara við Lands­rétt. Hins vegar kom fram í umræðum um þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una á Alþingi gagn­rýni á að ekki hefði verið aflað álits á hugs­an­legum afleið­ingum þess að synja ákvörðun sam­eig­in­legu EES-­nefnd­ar­innar stað­fest­ing­ar, í fyrsta sinn í 25 ára sögu EES-­sam­starfs­ins. Sökum þess að um for­dæma­lausa ákvörðun væri að ræða þótti utan­rík­is­ráð­herra rétt að leita álits sér­fræð­inga um afleið­ingar þess að synja ákvörðun nefnd­ar­innar stað­fest­ing­ar. Í því skyni var ann­ars vegar leitað til Carls Bauden­bacher, fyrr­ver­andi for­seta EFTA-­dóm­stóls­ins, og hins vegar Alþjóða- og Evr­ópu­rétt­ar­stofn­unar Háskól­ans í Reykja­vík. Álits­gerð­irnar voru kynntar utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis 9. maí sl.,“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Heild­ar­kostn­aður við þessar álits­gerðir og ráð­gjöf liggur nú fyrir og nemur hann sam­tals 16.106.657 krón­um. Þar af nemur kostn­aður vegna álits­gerðar Bauden­bachers 8.470.737 krónum en inni­falið í þeirri fjár­hæð er allur kostn­að­ur, þ.e. ferða­kostn­aður og sér­stakt tíma­gjald vegna vinnu­fram­lags á meðan hann var hér á landi. Þannig kom Bauden­bacher fyrir utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis og kynnti álits­gerð sína í íslenskum fjöl­miðl­u­m. 

Sund­ur­lið­aður kostn­aður vegna álits­gerð­anna og vinnu í tengslum við þær er sem hér seg­ir: 

Stefán Már Stef­áns­son         kr. 2.756.520

Frið­rik Árni Frið­riks­son Hir­st kr. 1.776.880

Thales slf. (Da­víð Þór Björg­vins­son) kr. 927.520

Skúli Magn­ús­son                 kr. 1.500.000

Alþjóða- og Evr­ópu­rétt­ar­stofnun HR kr. 675.000

Carl Bauden­bacher         kr. 8.470.737

Sam­tals                 kr. 16.106.657



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent