Stuðningur við þriðja orkupakkan eykst mest meðal kjósenda Vinstri grænna

90 prósent kjósenda Miðflokksins eru mjög eða frekar andvíg innleiðingu þriðja orkupakkans.

Katrín Jakobsdóttir
Auglýsing

47 pró­sent Íslend­inga eru and­vígir að þriðji orku­pakk­inn taki gildi á Íslandi en 34 pró­sent eru fylgj­andi. Um fimmt­ungur tekur ekki afstöðu til máls­ins. Stuðn­ingur meðal kjós­enda rík­is­stjórn­ar­flokk­anna jókst frá því að síð­asta könnun var gerð í maí síð­ast­liðnum og mest meðal Vinstri grænna. Þetta kemur fram í könnun MMR sem fram­kvæmd var 7. til 14. júní 2019. Heild­ar­fjöldi svar­enda var 998.

Þriðj­ungur lands­manna er mjög and­vígur því að þriðji orku­pakk­inn taki gildi og er lít­ill munur á milli kann­ana. 13 pró­sent eru frekar and­víg og 15 pró­sent frekar fylgj­andi. Hlut­fall þeirra sem svara „bæði og“ helst svipað milli kann­ana. Hlut­fall þeirra sem eru mjög fylgj­andi eykst um sex pró­sentu­stig á milli kann­ana, það er úr 13 pró­sentum í 19 pró­sent. Þriðj­ungur þátt­tak­enda tók ekki afstöðu til spurn­ing­ar­inn­ar, að því er kemur fram í til­kynn­ingu MMR.

Auglýsing
Bæði eru fleiri karlar en konur mjög and­vígir, 34 pró­sent, eða mjög fylgj­andi, 22 pró­sent. 32 pró­sent kvenna eru mjög and­vígar og 15 pró­sent þeirra eru mjög fylgj­andi. Hins vegar eru hærra hlut­fall kvenna en karla frekar and­víg eða frekar fylgj­andi. Stuðn­ingur kvenna við orku­pakk­ann jókst um 7 pró­sentu­stig milli kann­anna.

Úr könnun MMR

Stuðn­ingur við þriðja orku­pakk­ann er mestur meðal svar­enda 68 ára og eldri, þar af eru 22 pró­sent þeirra mjög fylgj­andi. Hins vegar eru svar­endur á aldr­inum 50 til 67 ára þeir sem helst eru and­vígir inn­leið­ingu eða um 37 pró­sent þeirra.

Úr könnun MMR

Skýr munur er á milli íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og lands­byggð­ar­inn­ar. 29 pró­sent íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins eru mjög and­vígir sam­an­borið við 41 pró­sent íbúa lands­byggð­ar­inn­ar. 23 pró­sent íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins eru mjög fylgj­andi inn­leið­ingu sam­an­borið við 12 pró­sent íbúa lands­byggð­ar­inn­ar. Hlut­fall lands­byggð­ar­búa sem and­víg eru inn­leið­ingu lækkar þar að auki um 9 pró­sentu­stig á milli mæl­inga.

Stuðn­ingur eykst meðal kjós­enda rík­is­stjórn­ar­flokk­anna

Kjós­endur Mið­flokks­ins eru þeir sem hel­stir eru and­vígir inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans, þar af eru 75 pró­sent þeirra mjög and­víg. Alls eru 90 pró­sent þeirra mjög eða frekar and­víg.

12 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna voru mjög and­víg sam­an­borið við 33 pró­sent kjós­enda Fram­sóknar og 30 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hins vegar eru 44 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna mjög eða frekar fylgj­andi þriðja orku­pakk­anum og eykst hlut­fallið þar með um 18 pró­sentu­stig frá síð­ustu könn­un.



Úr könnun MMR

Stuðn­ingur jókst einnig meðal kjós­enda Fram­sóknar og mælist 34 pró­sent sem er 12 pró­sentu­stiga aukn­ing á milli kann­anna.

Stuðn­ingur meðal stjórn­ar­and­stöð­unnar jókst mest á meðal kjós­enda Við­reisn­ar, þar sem hlut­fallið er 74 pró­sent. Kjós­endur Sam­fylk­ingar eru einnig hlynnt­ir, það er um 73 pró­sent þeirra. 43 pró­sent kjós­enda Pírata eru frekar eða mjög hlynnt þriðja orku­pakk­anum en 34 pró­sent mjög eða frekar and­víg.

39 pró­sent svar­enda sem styðja rík­is­stjórn­ina kveðj­ast fylgj­andi inn­leið­ingu en 38 pró­sent þeirra eru and­víg. Þeir sem ekki styðja rík­is­stjórn­ina eru lík­legri til að segj­ast vera and­víg inn­leið­ingu, það er 53 pró­sent and­víg og 31 pró­sent fylgj­andi.

Þeir svar­endur sem hlynntir eru inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið eru fremur fylgj­andi, 69 pró­sent, en þeir sem eru and­vígir inn­göngu, það er 12 pró­sent þeirra.

Úr könnun MMR

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent