Enn lækka meginvextir – Orðnir 3,75 prósent

Meginvextir Seðlabanka Íslands hafa verið lækkaðir um 0,25 prósentustig.

Már Guðmundsson er seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson er seðlabankastjóri.
Auglýsing

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að lækka meg­in­vexti bank­ans um 0,25 pró­sentu­stig. Það þýðir að vextir hans eru nú 3,75 pró­sent og hafa lækkað um 0,75 pró­sentu­stig í síð­ustu tveimur ákvörð­unum henn­ar. 

Þar með hefur einni af for­sendum Lífs­kjara­samn­ing­anna, um að meg­in­vextir Seðla­banka Íslands myndu lækka um 0,75 pró­sentu­stig fyrir sept­em­ber 2020, verið náð rúmu ári fyrir þá dag­setn­ingu, að minnsta kosti tíma­bund­ið.

Vaxta­lækk­unin kemur ekki mikið á óvart. Síð­ast þegar vaxta­á­kvörðun átti sér stað voru vextir lækk­aðir um 0,5 pró­sentu­stig og allir grein­ing­ar­að­ilar voru sam­mála um að áfram­hald­andi vaxta­lækkun væri í kort­un­um. 

Auglýsing

Meg­in­vextir Seðla­banka Íslands hafa ekki verið lægri frá því seint á árinu 2011, en á því ári voru þeir undir fjórum pró­sentum í nokkra mán­uð­i. 

Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar segir að nýjar upp­lýs­ingar um þróun efna­hags­mála breyti ekki því mati á efna­hags­horfum sem lá fyrir á síð­asta fundi pen­inga­stefnu­nefnd­ar. „Hag­vöxtur á fyrsta árs­fjórð­ungi var í takt við maí­spá Seðla­bank­ans og áfram er gert ráð fyrir sam­drætti í þjóð­ar­bú­skapnum sem mun birt­ast frekar á kom­andi mán­uð­um. Kröft­ugri einka­neysla á fyrsta fjórð­ungi og leið­andi vís­bend­ingar gætu þó bent til þess að und­ir­liggj­andi þróttur inn­lendrar eft­ir­spurnar hafi verið meiri en talið var. Á móti eru horfur á að sam­dráttur í ferða­þjón­ustu verði meiri.

Verð­bólga hefur enn sem komið er verið í sam­ræmi við síð­ustu spá Seðla­bank­ans en sam­kvæmt spánni hefur hún náð hámarki og mun hjaðna í átt að mark­miði þegar líður á árið. Frek­ari lækkun gengis krón­unnar gæti þó sett strik í þann reikn­ing. Verð­bólgu­vænt­ingar hafa lækkað frá því sem þær voru í kringum síð­asta fund nefnd­ar­inn­ar. Taum­hald pen­inga­stefn­unnar hefur því auk­ist á ný.

Sam­dráttur í þjóð­ar­bú­skapnum mun reyna á heim­ili og fyr­ir­tæki en við­náms­þróttur þjóð­ar­bús­ins er umtals­vert meiri nú en áður. Svig­rúm pen­inga­stefn­unnar til að mæta efna­hags­sam­drætt­inum er einnig tölu­vert, sér­stak­lega ef fer sem horfir og verð­bólga og verð­bólgu­vænt­ingar hald­ast við verð­bólgu­mark­mið. Þá mun boðuð slökun í aðhaldi rík­is­fjár­mála leggj­ast á sömu sveif.

Pen­inga­stefnan mun á næst­unni ráð­ast af sam­spili þró­unar efna­hags­um­svifa ann­ars vegar og verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga hins veg­ar.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent