Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar voru atvinnulausir 10.000 í maí síðastliðnum, eða 4,7 prósent, sem er einu og hálfu prósentustigi hærra en í apríl. Fyrir sama tímabil lækkaði leiðrétt hlutfall starfandi fólks um tvö og hálft prósentustig, eða í 77,2 prósent fyrir maí 2019.
Þetta kemur fram í frétt Hagstofunnar í dag.
Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 209.900 í maí. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 81,1 prósent, sem er 1,3 prósentustigi lægra hlutfall en í apríl.
Þegar horft er til síðustu sex mánaða sýnir leitni að árstíðaleiðréttar tölur um atvinnuþátttöku standa í stað. Hlutfall starfandi lækkaði lítillega eða um 0,5 prósentustig um leið og atvinnuleysi jókst um 0,6 prósentustig.
Samkvæmt óleiðréttum mælingum voru að jafnaði 210.200 manns á aldrinum 16 til 74 ára á vinnumarkaði í maí 2019. Það jafngildir 82,4 prósent atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu reyndust 197.500 vera starfandi og 12.700 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 77,4 prósent og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 6,1 prósent.
Samanburður mælinga fyrir maí 2018 og 2019 sýnir að vinnuafli fjölgaði um 5.700 manns, á meðan hlutfall þess af mannfjölda lækkaði um 0,3 prósentustig. Starfandi fólki fækkaði um 800 og hlutfallið lækkaði um 2,3 prósentustig, frá því á sama tíma árið 2018. Atvinnulausir í maí 2019 voru um 6.500 manns fleiri en á sama tíma árið 2018 þegar þeir voru 6.200 eða 3 prósent af vinnuaflinu. Alls voru 44.900 utan vinnumarkaðar í maí 2019 en höfðu verið 42.700 í maí 2018.