Starfsgreinasambandið og Efling skora á sveitarfélögin að semja við SGS og Eflingu um sömu greiðslur og aðrir munu fá þann 1. ágúst næstkomandi eða taka að öðrum kosti sjálfstæða ákvörðun um að greiða sínu fólki inn á væntanlegan kjarasamning til jafns við annað starfsfólk, að því er segir í sameiginlegri fréttatilkynningu Starfsgreinasambands Íslands (SGS) og Eflingar.
SGS og Efling hafa átt í kjarasamningsviðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga vegna félagsmanna sinna sem vinna hjá sveitarfélögum öðrum en Reykjavíkurborg. Viðræðurnar hafa gengið bæði hægt og illa, samkvæmt tilkynningunni.
Í tilkynningunni segir að samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hafi nú þegar samið við einstök sambönd og stéttarfélög um að þeir félagsmenn sem starfa hjá sveitarfélögunum, skuli fá greiddar 105.000 krónur, miðað við fullt starf, þann 1. ágúst næst komandi sem greiðslu inn á væntanlegan samning. Þar á meðal eru samtökin BSRB en greint var frá því í dag að BSRB hafi náð samkomulagi við Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg um framhald kjaraviðræðna.
Því hafa SGS og Efling krafist þess að félagsmenn þeirra hjá sveitarfélögunum fái líka umrædda greiðslu en samkvæmt félögunum var því alfarið hafnað af hálfu samninganefndar sveitarfélaga með þeim rökum að SGS og Efling væru búin að vísa kjaradeilunni til ríkissáttasemjara. Í tilkynningunni segir að það sé öllu ólíðandi.
Enn fremur kemur fram að það sé samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélag „til vansa að skilja sína lægst launuðu starfsmenn eftir eina úti í kuldanum. Starfsgreinasamband Íslands og Efling trúa því ekki fyrr en á reynir, að sveitarstjórnarmenn hyggist koma svona fram við sitt frábæra starfsfólk.“