Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason hefur verið ráðinn aðstoðarbankastjóri Arion banka og mun hann hefja störf með haustinu. Um nýtt hlutverk er að ræða innan bankans.
Ásgeir hefur undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Kviku banka hf. Hann var meðlimur í framkvæmdahópi um losun fjármagnshafta árið 2015 og áður starfaði hann hjá MP banka sem yfirlögfræðingur, hjá LOGOS lögmannsþjónustu í Reykjavík og London og hjá Straumi fjárfestingarbanka.
Ásgeir er með lögmannsréttindi og hefur lokið lagaprófi frá Háskólanum í Reykjavík.
,,Það er mikill fengur fyrir okkur í Arion banka að fá Ásgeir til liðs við okkur. Hann býr yfir mjög góðri þekkingu á fjármálastarfsemi og því hvernig auka megi arðsemi í þeirri starfsemi í kjölfar breytts starfsumhverfis banka. Ég er því sannfærður um að hans kraftar eiga eftir að nýtast vel í bankanum og hlakka til samstarfsins,“ segir Benedikt Gíslason, nýr bankastjóri Arion banka, en hann hóf störf 1. júlí síðastliðinn.
Heildareignir Arion banka nema rúmlega 1.200 milljörðum króna en eigið fé bankans var 193 milljarðar í lok fyrsta ársfjórðungs. Markaðsvirði bankans nemur um þessar mundir um 140 milljörðum króna.