HB. Grandi hf. hefur gert Útgerðarfélagi Reykjavíkur hf., áður Brimi, tilboð um kaup á öllu hlutafé í sölufélögum í Japan, Hong Kong og á meginlandi Kína, sem og þjónustufélagi á Íslandi sem tengist framangreindum félögum.
Tilgangur kaupanna er að styrkja stöðu HB Granda og sjávarútvegs á Íslandi á mikilvægum og vaxandi mörkuðum í Asíu.
Frá þessu er greint í tilkynningu til Kauphallar.
Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. hefur gengið að fyrrnefndu kauptilboði og hafa félögin undirritað kaupsamninga. Öll hin keyptu félög eru í fullri eigu Útgerðarfélags Reykjavíkur hf., sem er þannig seljandinn í viðskiptunum.
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda, er jafnframt stærsti eigandi ÚR, sem síðan er stærsti eigandi HB Granda.
Kaupverðið samsvarar alls 31,1 milljónum evra fyrir allt hlutafé allra frangreindra félaga, eða sem nemur um 4,4 milljörðum króna.
Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki stjórna HB Granda hf. og Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. sem og samþykkt hluthafafundar HB Granda hf., en fyrirhugað er að kaupverðið verði greitt með útgáfu 133.751.606 nýrra hluta í HB Granda hf. til Útgerðarfélags Reykjavíkur hf.
Þetta samsvarar aukningu hlutafjár um 7,3 prósent sem myndi leiða til þess að Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. myndi eftir viðskiptin eiga samtals 42,31 prósent heildarhlutafjár í HB Granda hf.
Unnin verður áreiðanleikakönnun á hinum keyptu félögum og skýrsla um kaupin samkvæmt lögum um viðskipti tengdra aðila og verður hún kynnt hluthöfum með fundarboði. Hlutabréfin verða afhent við greiðslu kaupverðsins.
Umrædd félög hafa staðið að sölu íslenskra sjávarútvegsafurða á Asíu markaði allt frá árinu 1989, segir í tilkynningu. Sölufélögin seldu á síðasta ári rúmlega 38.000 tonn af sjávarafurðum. Velta félaganna nam samtals 146 milljónum evra. Hagnaður eftir afskriftir, skatta og fjármagnsliði (EBITDA) nam 4,2 milljónum evra. Bókfært eigið fé félaganna er 11,5 milljónir evra, eða sem nemur 1,6 milljörðum króna.
Markaðsvirði HB Granda í dag, er um 60 milljarðar króna.