Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur verið kjörinn varaformaður bankaráðs Asíska innviðafjárfestingarbankans, AIIB, á ársfundi bankans sem haldinn var í Lúxemborg á föstudag og laugardag. Frá þessu er greint í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Ísland meðal 57 stofnenda
Í tilkynningunni segir að AIIB sé ung en ört vaxandi alþjóðafjármálastofnun. Bankinn hóf starfsemi í janúar 2016 en hann er stofnaður um samstarf þjóða til að taka á innviðafjárfestingarþörf í Asíu. Ísland var á meðal 57 stofnenda bankans en Kínverjar höfðu forystu um stofnun bankans.
Eftir ársfundinn í vikunni eru félagar orðnir hundrað og hlutafé bankans nemur 100 milljörðum Bandaríkjadala. Samkvæmt tilkynningunni er við skipulag bankans byggt á reynslu alþjóðaþróunarbanka og áhersla lögð á „opna, óháða og gagnsæja stjórnarhætti og skýr ábyrgðarskil“.
Ísland er í kjördæmi með Bretlandi, Danmörku, Noregi, Póllandi, Rúmeníu, Sviss, Svíþjóð og Ungverjalandi en löndin deila saman stjórnarmanni í bankanum sem nú er frá Bretlandi. Ísland var með varamann í stjórn fyrsta hálfa starfsár bankans og mun eiga varamann næst árin 2022 til 2024.
Í síðustu viku samþykkti bankinn að fjármagna, ásamt efnahags- og þróunarbankanum, fyrsta jarðvarmaorkuverkefni bankans, í Tyrklandi, en að því koma tvö íslensk ráðgjafafyrirtæki. Bankinn hefur nú samþykkt fjárfestingar í 40 verkefnum í 27 löndum fyrir samtals um átta milljarða dollara.