Hundruð þúsunda mótmæla í Púertó Ríkó

Mótmælin hafa staðið yfir í rúmlega viku og beindust í fyrstu að ríkisstjóra Púertó Ríkó í kjölfar uppljóstrunar afar ósmekklegra samskipta hans við vini og samstarfsmenn.

Mótmæli í Púertó Ríkó - Júlí 2019
Auglýsing

Hund­ruð þús­unda mót­mæl­enda flykkt­ust á götur Púertó Rík­ó í gær og lok­uðu fyrir hrað­brautir og sam­göngur í höf­uð­borg­inni. Mót­mæl­end­urnir krefj­ast afsagnar rík­is­stjóra Púertó Ríkó, Ricardo A. Rosselló. Mót­mælin eru með þeim stærstu í sögu eyj­unn­ar, að því er kemur fram í frétt The New York Times. 

Mót­mælin hófust fyrr í mán­uð­inum þegar blaða­menn komust yfir um 900 blað­síður af afritum af sím­skeytum Rosselló og vina hans. Skeytin voru afar bíræf­in, full kven­fyr­ir­litn­ingar og for­dóma gagn­vart sam­kyn­hneigð­um.

Auglýsing
Mótmælin bein­ast enn gegn Rosselló en auk þess mót­mæla íbú­arnir vegna almennr­ar ó­á­nægju með stjórn rík­is­svæð­is­ins, slægri hag­stjórn síð­ustu ára og spill­ingu stjórn­mála­manna.  

Vilja afsögn Rosselló taf­ar­laust

Til átaka kom á milli lög­reglu og mót­mæl­enda í gær. Lög­regla skaut til að mynda táragasi og gúmmí­kúlum á mót­mæl­endur sem mót­mæltu fyrir framan heim­ili Rosselló.

Tveir flokkar hafa lengi verið við völd í Púertó Ríkó. Annar þeirra er ­flokkur Rossell­ó ­sem kall­ast Nýi fram­fara­flokk­ur­inn. Rosselló sagði síð­ast­lið­inn sunnu­dag að hann myndi bráð­lega láta af völdum og að hann muni ekki fara í fram­boð árið 2020. Mót­mæl­end­urnir vilja þó að hann segi taf­ar­laust af sér.

Íbúar lang­þreyttir á stöðu sinni gagn­vart Banda­ríkj­unum

Í Púertó Rík­ó ­búa 3.2 millj­ónir manna og er ekki fylki í Banda­ríkj­unum en er rík­is­svæði þess (US ter­ritor­y). Það þýðir að íbúar þess geta ekki kosið sér fram­bjóð­endur á banda­rískt þing eða í for­sæt­is­kosn­ingum en eyjan telst engu að síður ekki sem sjálf­stætt rík­i. 

Árið 2012 kusu íbúar eyj­unnar um stöðu sína sem rík­is­svæði og vildu 54 pró­sent kjós­enda hætta að vera rík­is­svæði. Engu að síður varð engin breyt­ing á stöðu Púertó Ríkó í kjöl­farið þar sem áætlun um næstu skref skort­i. 

Nátt­úru­ham­farir árið 2017 skilja enn eftir sig spor

Felli­byl­ur­inn María fór yfir eyj­una árið 2017 og skildi eftir sig mikla eyði­legg­ingu. Í kjöl­farið fluttu þús­undir af brott ásamt því að at­vinnu­leysi hækk­aði til muna og var eyjan var nærri gjald­þroti. Don­ald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, var harð­lega gagn­rýndur fyrir fram­komu sína gagn­vart eyj­unni og var hann sak­aður um skeyt­ing­ar­leysi gagn­vart íbúum henn­ar.

Drengur á ferð í Catano í Púertó Ríkó eftir að fellibylurinn María fór yfir landið.  MYND: EPATrump hefur sagt Rosselló og stjórn hans vera „al­gjör­lega van­hæfa“ og spillta. Hann hefur jafn­framt sagst hafa mik­inn skiln­ing á aðstæðum á eyj­unni og að hann sjálfur sé það besta sem gerst hafi fyrir Púertó Ríkó.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar