Stöðnun á fasteignamarkaðnum

Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,2 prósent milli maí og júní. Verð á fjölbýli hækkaði um 0,3 prósent og verð á sérbýli lækkaði um 0,5 prósent.

img_4955_raw_0710130602_10191533305_o.jpg
Auglýsing

Fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 0,2 pró­sent milli maí og júní sam­kvæmt tölum Þjóð­skrár. Verð á fjöl­býli hækk­aði um 0,3 pró­sent og verð á sér­býli lækk­aði um 0,5 pró­sent.

Þegar horft er yfir 12 mán­aða tíma­bil þá hefur verð á fjöl­býli hækkað um 3,4 pró­sent og verð á sér­býli um 1,8 pró­sent. Vegin árs­hækkun hús­næð­is­verðs nemur nú 3,4 pró­sent, sem er 0,4 pró­sentu­stiga lækkun frá fyrri mán­uði.

Sam­kvæmt Hag­sjá Hag­fræði­deildar Lands­bank­ans er fast­eigna­mark­aður í algerri kyrr­stöðu og telur hún þessar tölur vera enn ein birt­ing­ar­mynd á því að fast­eigna­mark­að­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sé í mik­illi kyrr­stöðu.

Auglýsing

Við­skipti með fjöl­býli skipta lang­mestu máli við mæl­ingar á þróun fast­eigna­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sam­kvæmt Hag­fræði­deild Land­bank­ans. Þannig voru við­skipti með fjöl­býli um 82 pró­sent allra við­skipta með íbúð­ar­hús­næði á árinu 2018. Á síð­ustu sex mán­uðum hefur verð á fjöl­býli hækkað um 1 pró­sent og skiptir 1 pró­sent verð­lækkun í febr­úar miklu í því sam­bandi. Sam­svar­andi tala fyrir árið 2018 var 1,9 pró­sent og 11,9 pró­sent fyrir árið 2017.

Vísi­tala neyslu­verðs án hús­næðis hækk­aði um 0,37 pró­sent milli mán­aða í júni og 3 pró­sent á einu ári, eða nokkuð minna en fast­eigna­verð á sömu 12 mán­uð­um. Hag­fræði­deild Lands­bank­ans bendir á að raun­verð fast­eigna hafi því breyst lítið milli mán­aða, nema hvað raun­verð sér­býlis hefur gefið nokkuð eft­ir. Horft yfir lengra tíma­bil hefur hóf­leg hækkun fast­eigna­verðs síð­ustu mán­uði náð að halda nokkurn veg­inn í við þróun verð­bólg­unnar án hús­næð­is­kostn­að­ar. Því hefur raun­verð íbúð­ar­hús­næðis verið nokkuð stöðugt. Raun­verð fór hæst í októ­ber 2007 fyrir hrun en lækk­aði svo mik­ið. Það náði aftur sama stigi í apríl 2017 og hefur síðan hækkað um tæp 10 pró­sent.

Árs­hækkun raun­verðs er orðin hóf­legri en áður. Þannig var raun­verð fast­eigna nú í júní um 0,2 pró­sent hærra en í júní 2018. Hækkun raun­verðs síð­ustu 12 mán­uði er mun minni en árin tvö þar á und­an. Sam­svar­andi tölur voru 4,1 pró­sent fyrir júní 2018 og 25 pró­sent fyrir júní 2017.

Við­skipti með íbúð­ar­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í júní voru mun minni en verið hefur lengi að und­an­skildum des­em­ber á síð­asta ári. Fjöldi við­skipta fyrstu sex mán­uði árs­ins 2019 var um 4 pró­sent minni og á sama tíma fyrir ári og við­skiptin í júní í ár voru um 23 pró­sent minni en í júní 2018. Það má því segja að fast­eigna­mark­að­ur­inn hafi gefið tölu­vert eftir hvað fjölda við­skipta varð­ar, sam­kvæmt Hag­fræði­deild­inn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent