Afkoma Landsbankans jákvæð um 11,1 milljarð króna

Afkoma Landsbankans var jákvæð um 11,1 milljarð króna eftir skatta á fyrri helmingi ársins 2019 samanborið við 11,6 milljarða króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Arðsemi eigin fjár á tímabilinu var 9,1 prósent á ársgrundvelli.

Landsbankinn
Auglýsing

Afkoma Lands­bank­ans var jákvæð um 11,1 millj­arð króna eftir skatta á fyrri helm­ingi árs­ins 2019 sam­an­borið við 11,6 millj­arða króna hagnað á sama tíma­bili árið 2018. Arð­semi eigin fjár á tíma­bil­inu var 9,1 pró­sent á árs­grund­velli, sam­an­borið við 9,9 pró­sent á sama tíma­bili 2018. Laun og launa­tengd gjöld lækk­uðu um 2 pró­sent á milli tíma­bila.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá bank­an­um.

Hreinar vaxta­tekjur voru 20,5 millj­arðar króna og hækk­uðu um 5 pró­sent á milli tíma­bila. Hreinar þjón­ustu­tekjur námu 4,1 millj­arði króna sam­an­borið við 3,9 millj­arða króna á sama tíma­bili í fyrra. Virð­is­rýrnun útlána nam 2,4 millj­örðum króna á tíma­bil­inu, sam­an­borið við jákvæðar virð­is­breyt­ingar upp á 1,7 millj­arða króna á sama tíma­bili árið áður. Van­skila­hlut­fall var 0,9 pró­sent á fyrri helm­ingi árs­ins 2019 sam­an­borið við 0,6 pró­sent á sama tíma­bili 2018.

Auglýsing

Rekstr­ar­tekjur bank­ans á fyrri helm­ingi árs­ins námu 27,9 millj­örðum króna sam­an­borið við 29,0 millj­arða króna á sama tíma­bili árið áður. Aðrar rekstr­ar­tekjur námu 5,7 millj­örðum króna sam­an­borið við 3,9 millj­arða króna á sama tíma­bili árið áður.

Vaxta­munur eigna og skulda nam 2,4 pró­sent á fyrri helm­ingi árs­ins 2019 en var 2,7 pró­sent á sama tíma­bili í fyrra.

Rekstr­ar­kostn­aður stendur í stað

Rekstr­ar­kostn­aður bank­ans nam 12,2 millj­örðum króna á fyrri helm­ingi árs­ins 2019 og stendur hann í stað á milli tíma­bila. Þar af var launa­kostn­aður 7,4 millj­arðar króna sam­an­borið við 7,5 millj­arða króna á sama tíma­bili árið 2018. Annar rekstr­ar­kostn­aður var 4,9 millj­arðar króna sam­an­borið við 4,6 millj­arða króna á sama tíma­bili árið áður.

Kostn­að­ar­hlut­fall á fyrri helm­ingi árs­ins 2019 var 40,4 pró­sent, sam­an­borið við 44,5 pró­sent á sama tíma­bili árið 2018.

Útlán juk­ust um 6,2 pró­sent frá ára­mót­um, eða um 66 millj­arða króna, bæði til ein­stak­linga og fyr­ir­tækja. Inn­lán hjá Lands­bank­anum juk­ust um tæp­lega 5 millj­arða frá ára­mót­um.

Eigið fé Lands­bank­ans var 240,6 millj­arðar króna þann 30. júní síð­ast­lið­inn og eig­in­fjár­hlut­fallið var 23,7 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent