Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur óskað eftir því að ráðgjafanefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara endurmeti hvort þörf sé á því að opna tollkvóta á lambahryggjum í ljósi nýrra upplýsinga sem nefndinni bárust frá framleiðendum. Nefndinni ber að skila niðurstöðu í þessari viku.
Frá þessu er greint í frétt ráðuneytisins í dag.
Frá því í vor hefur ráðgjafanefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara reglulega fengið tilkynningar um skort á lambahryggjum frá dreifingaraðilum. Þann 22. júlí síðastliðinn fékk nefndin upplýsingar sem bentu til þess að það stefndi í skort hjá stórum hluta framleiðendanna sem ýmist voru búnir að tæma sínar birgðir, áttu lítið eftir eða gátu ekki annað dreifingu með góðum hætti.
Lögðu til að felld yrði niður innflutningsvernd á lambahryggjum tímabundið
Í frétt ráðuneytisins segir að til að tryggja framboð á vörunni til neytenda hafi nefndin lagt til við ráðherra að felld yrði niður innflutningsvernd á lambahryggjum tímabundið, eða frá 29. júlí fram til 30. ágúst á þessu ári.
Áður en ráðherra tók afstöðu til tillögu nefndarinnar fékk nefndin upplýsingar um breytta birgðastöðu framleiðenda sem kunna að hafa áhrif á hvort lagaskilyrðum fyrir opnun tollkvóta sé fullnægt. Í ljósi þessa og með vísan til búvörulaga hefur ráðherra óskað eftir því að nefndin taki málið aftur til afgreiðslu og ljúki yfirferðinni í þessari viku.