Erla Hlynsdóttir hefur sagt starfi sínu lausu sem framkvæmdastjóri Pírata. Frá þessu greinir hún í stöðuuppfærslu á Facebook-síðu sinni í dag.
„Ég hef unnið með flokknum í gegn um tvennar kosningar, fyrst óvæntar alþingiskosningar og síðan sveitarstjórnarkosningar. Tími minn hjá Pírötum hefur verið afskaplega dýrmætur og ég er þakklát fyrir að hafa verið treyst fyrir þeim mikilvægu verkefnum sem ég hef fengið að sinna. Ég ætla hins vegar ekki að halda því fram að þetta hafi alltaf verið auðvelt. Síður en svo. Það er eiginlega ekki hægt að lýsa hvernig það er að vinna fyrir stjórnmálahreyfingu. En það er alltaf fjör,“ skrifar hún.
Hún segir að á þeim tíma sem hún hefur starfað fyrir hreyfinguna hafi hún kynnst mörgu einstöku fólki sem hún viti að hún hefði hvergi kynnst annars staðar en hjá Pírötum.
Leitar nýrra ævintýra
„Ég hef líka eignast sanna og trausta vini. Ég hef lært afar mikið um lífið, samskipti, stjórnmál, já og ferla. Við skulum aldrei gleyma ferlum! Þvílíkur skóli sem þetta hefur verið, þvílíkt sem ég hef getað lagt inn í reynslubankann.
Á þessum tímapunkti tel ég best að segja þetta gott og leita að nýjum ævintýrum. Ég veit að Píratar verða ekki í vanda að leita uppi sín eigin ævintýr,“ skrifar hún.