Samfylkingin bætir verulega við sig og mælist næst stærsti flokkurinn

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 19 prósent fylgi aðra könnunina í röð. Píratar og Flokkur fólksins tapa fylgi milli mánaða en Samfylkingin bætir verulega.

Logi Einarsson mynd: Berglaug Petra
Auglýsing

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er enn stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins sam­kvæmt nýj­ustu könnun MMR með 19,1 pró­sent fylgi. Það er sama fylgi og flokk­ur­inn mæld­ist með í síð­asta mán­uði, en fylgi flokks­ins hefur ekki mælst minna frá því í banka­hrun­in­u. 

Sam­fylk­ingin bætir veru­lega við sig fylgi milli mán­aða og mælist nú með 16,8 pró­sent fylgi. Það er 4,4 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn mæld­ist með í júlí.

Mið­flokk­ur­inn bætir einnig aðeins við sig hjá MMR og mælist nú með 13 pró­sent fylgi, sem er aðeins meira en þau 12,4 pró­sent sem flokk­ur­inn mæld­ist með í júlí. 

Auglýsing

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir einnig við sig fylgi og myndi fá 10,4 pró­sent ef kosið væri í dag en nauð stuðn­ings 8,3 pró­sent kjós­enda í síð­asta mán­uði.

Fylgi Pírata dregst umtals­vert saman milli mán­aða og mælist nú 11,3 pró­sent. Flokk­ur­inn mæld­ist með 14,1 pró­sent í júlí og var þá annar stærsti flokkur lands­ins, en er nú í fimmta sæt­i. 

Vinstri græn, flokkur for­sæt­is­ráð­herra, mælist með 11,5 pró­sent fylgi eða einu pró­sentu­stigi minna en fyrir mán­uð­i. 

Við­reisn yrði síð­asti flokk­ur­inn sem næði inn manni á þing en fylgi flokks­ins mælist 9,3 pró­sent, sem er aðeins minna en í júlí. Flokkur fólks­ins tapar 2,7 pró­sentu­stigum milli mán­aða og næði ekki inn á þing með sitt 4,1 pró­sent fylgi. Það myndi Sós­í­alista­flokkur Íslands ekki heldur gera, en 2,9 pró­sent segja að þeir myndu kjósa þann flokk. 

Könn­unin var fram­kvæmd 12. - 19. ágúst 2019 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 990 ein­stak­ling­ar, 18 ára og eldri.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent