António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti til aukinna loftslagsaðgerða að loknum leiðtogafundi G7-ríkjanna sem hann sótti sem gestur í Biarritz í Frakklandi í dag. Parísarsamkomulagið dygði ekki lengur. Frá þessu er greint í frétt Sameinuðu þjóðanna.
„Það er afar brýnt að ríki skuldbindi sig til að bæta við það sem lofað var í París, því loforðin sem gefin voru þar hrökkva ekki til,“ sagði hann og bætti því við að því sem heitið var í París hefði ekki einu sinni verið hrint í framkvæmd. „Við þurfum meiri metnað, við þurfum öflugri skuldbindingu.“
Fram kemur í fréttinni að hann hafi komið til Biarritz á leiðtogafund G7 í því skyni að fylkja liði fyrir loftslagsaðgerðafund leiðtoga heims á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í september.
Sendinefndir 195 þjóða samþykktu í París í Frakklandi þann 12. desember 2015 samkomulag til að reyna að vinda ofan af loftslagsbreytingum sem orsakað hafa hlýnun jarðar. Samkomulagið felur meðal annars í sér áætlanir um varnir gegn áhrifunum. Tilgangur samkomulagsins var að halda hlýnun jarðar vel innan við 2 gráður og að keppast að því að hún verði ekki meiri en 1,5 gráður ef mögulegt væri.
Ungt fólk í fararbroddi
„Við höfum séð almenna borgara fylkja liði, ungt fólk fylkja liði og við vonumst til að ríki heims komi til New York til að skuldbinda sig til að ná kolefnisjöfnuði fyrir 2050,“ sagði Guterres. „Til þess þarf að endurskoða landsáætlanir um loftslagsaðgerðir sem endurnýja ber eftir 2020. Og við verðum að hafa hugfast að skattleggja ber kolefni ekki fólk. Binda ber enda á niðurgreiðslur á jarðefnaeldsneyti og hætta að byggja kola-orkuver eftir 2020.“
Aðalframkvæmdastjórinn sagðist hafa sótt G7-fundinn vegna þess að hann fæli í sér gott tækifæri til að kalla eftir öflugum aðgerðum af hálfu alþjóðasamfélagsins. „Ung fólk hefur verið í fararbroddi og við munum byrja fundinn með leiðtogafundi ungmenna hjá Sameinuðu þjóðunum, en við þurfum á góðum fordæmum að halda, ekki síst af hálfu þeirra sem tilheyra G7 ríkjunum,” sagði hann.