Afgangur A-hluta Reykjavíkur 665 milljónum undir áætlun

Matsvirði fasteigna í eigu Félagsbústaða hækkaði um 3,5 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Afgangur af þeim hluta reksturs borgarinnar sem rekinn er fyrir skattfé var hins vegar tæplega 30 prósent undir áætlun.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Auglýsing

Rekstur A-hluta borg­ar­inn­ar, sá hluti sem fjár­magn­aður er með skatt­tekj­um, var 665 millj­ónum undir áætlun á fyrri hluta árs. Hagn­aður var 1.653 millj­ónir króna en áætl­anir höfðu gert ráð fyrir að hann yrði 2.318 millj­ónir króna. Því var hagn­að­ur­inn tæp­lega 29 pró­sent undir áætl­un.

Rekstr­ar­nið­ur­staða fyrir fjár­magnsliði er enn lengra frá þeirri nið­ur­stöðu sem áætl­anir gerðu ráð fyr­ir. Hún var jákvæð um 1.811 millj­ónir króna en sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi fjár­hags­á­ætlun átti hún að vera 3.188 millj­ónir króna. Nið­ur­staðan var því 1.377 millj­ónum krónum lak­ari en áætl­unin gerði ráð fyr­ir. 

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg vegna upp­gjörs henn­ar. Þar segir að lak­ari rekstr­ar­nið­ur­staða skýrist einkum af lægri tekjum af sölu bygg­ing­ar­rétt­ar, lægri skatt­tekjum og hærri gjald­færslu líf­eyr­is­skuld­bind­inga en áætl­anir höfðu gert ráð fyr­ir. Skuldir A-hlut­ans uxu um 5,5 millj­arða króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins.

Auglýsing

Þegar rekstur B-hluta sam­stæðu Reykja­vík­ur, en undir hann falla fjár­hags­lega sjálf­stæð fyr­ir­tæki í hálfu eða meiri­hluta eigu borg­ar­inn­ar, er tal­inn með þá batnar upp­gjörið umtals­vert og er jákvætt um 7,7 millj­arða króna. Það er tæp­lega 1,2 millj­arði króna yfir áætlun en ástæða þessa er einkum sú að mats­verð hús­næðis í eigu Félags­bú­staða hækk­aði umtals­vert á tíma­bil­inu, eða um 3,5 millj­arða króna. Það er fjár­magn sem borgin getur ekki losað nema að hún hefji sölu á félags­legu hús­næði í sinni eigu. Á und­an­förnum árum hefur borgin verið að auka við félags­legt hús­næði frekar en að selja slíkt. 

Borg­ar­stjórn­ar­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks, stærsta stjórn­mála­flokks­ins í minni­hluta borg­ar­stjórn­ar, lagði til á fundi borg­ar­ráðs í morg­un, þar sem árs­hluta­reikn­ing­ur­inn var til afgreiðslum að fengnir yrðu óháðir mats­að­ilar til að meta eigna­safn Félags­bú­staða hf., en virði eigna félags­ins hefur hækkað um tæp­lega 51 millj­arð króna á nokkum árum. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent