0,3 prósent hagvöxtur á fyrri helmingi ársins 2019

Hagstofa Íslands hefur leiðrétt tölur um hagvöxt á fyrsta ársfjórðungi. Í fyrri niðurstöðum hennar sagði að hann hefði verið jákvæður um 1,7 prósent. Raunin var hins vegar samdráttur upp á 0,9 prósent.

Landsframleiðsla á mann á Íslandi er nú meiri en nokkru sinni áður.
Landsframleiðsla á mann á Íslandi er nú meiri en nokkru sinni áður.
Auglýsing

Lands­fram­leiðsla jókst um 0,3 pró­sent á fyrstu sex mán­uðum árs­ins að raun­gildi þegar hún er borin saman við fyrstu sex mán­uði síð­asta árs. Þetta kemur fram í frétt sem Hag­stofa Íslands birti í morg­un. 

Þar segir að hag­vöxtur hafi verið 1,4 pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi 2019, sem lauk í lok júní síð­ast­lið­ins. Þá hafa tölur um lands­fram­leiðslu á fyrsta árs­fjórð­ungi verið end­ur­skoð­að­ar. Sam­kvæmt þeirri end­ur­skoðun var 0,9 pró­sent sam­dráttur á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins, en ekki 1,7 pró­sent hag­vöxtur líkt og fyrri nið­ur­stöður Hag­stofu Íslands höfðu sagt til um. 

Auglýsing
Í frétt­inni segir að þessi skekkja, upp á 2,6 pró­sentu­stig, haf verið vegna þess að „gögn inni­halda upp­lýs­ingar um umfang og fram­vindu bygg­ing­ar­fram­kvæmda sem náðu yfir lengra tíma­bil en sam­svarar við­mið­un­ar­tíma­bili þjóð­hags­reikn­inga. Hefur það nú verið leið­rétt á grund­velli nýrra gagna. Sam­kvæmt end­ur­skoðun mæld­ist vöxtur íbúða­fjár­fest­ingar á 1. árs­fjórð­ungi 22,2 pró­sent borið saman við 58,4 pró­sent sam­kvæmt áður útgefnum töl­u­m.“

Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2019 hefur íbúða­fjár­fest­ing auk­ist um 31,2 pró­sent að raun­gildi, borið saman við fyrstu sex mán­uði árs­ins 2018. 

Hag­vöxtur 2018 4,6 pró­sent

Líkt og áður sagði þá jókst lands­fram­leiðsla á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2019 um 0,3 pró­sent að raun­gildi borið saman við fyrstu sex mán­uði árs­ins 2018. Á sama tíma dróg­ust þjóð­ar­út­gjöld saman um 3,1 pró­sent. Í frétt Hag­stof­unnar segir að einka­neysla hafi auk­ist að raun­gildi um 2,2 pró­sent, sam­neysla um þrjú pró­sent en fjár­muna­myndun dreg­ist saman um 16,4 pró­sent. Útflutn­ingur jókst um 3,1 pró­sent en inn­flutn­ingur dróst saman um 10,6 pró­sent.

Hag­stofan birti síð­ast þjóð­hags­spá 10. maí síð­ast­lið­inn. Nið­ur­staða hennar var að verg lands­fram­leiðsla myndi drag­ast saman um 0,2 pró­sent í ár. Í henni kom einnig fram að hag­vöxtur hefði verið 4,6 pró­sent í fyrra. Nú hafa tölur um hag­vöxt árið 2018 einnig verið end­ur­skoð­að­ar. Hann reynd­ist hærri en áður var áætl­að, eða 4,8 pró­sent. Næsta þjóð­hags­spá verður birt fyrsta nóv­em­ber og verður athygl­is­vert að sjá hvernig ofan­greindar skekkjur muni hafa áhrif á hana.

Gangi síð­asta þjóð­hags­spá eftir verður 2019 fyrsta árið frá 2010 þar sem ekki mælist hag­vöxtur á Íslandi. Frá þeim tíma hefur lands­fram­leiðsla vaxið í heild um 34 pró­sent að raun­gildi. Að teknu til­liti til mann­fjölda­aukn­ing­ar, sem nam 2,7 pró­sent, jókst lands­fram­leiðsla á mann að raun­gildi um 2,1 pró­sent árið 2018. Frá árinu 2010 hefur lands­fram­leiðsla á mann auk­ist um 20,9 pró­sent að raun­gildi, og er nú meiri en áður hefur mælst.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent