Trúði ekki að hjólandi Dagur væri borgarstjóri

Yfirmaður öryggismála vegna heimsóknar Mike Pence í Höfða trúði því ekki að Dagur B. Eggertsson væri borgarstjórinn í Reykjavík. Vegna þess að hann var á hjóli.

framti-flugvallar-i-vatnsmyri_19145057212_o.jpg
Auglýsing

Yfir­maður örygg­is­mála við Höfða þrí­spurði starfs­mann sendi­ráðs Banda­ríkj­anna hvort að Dagur B. Egg­erts­son væri virki­lega borg­ar­stjór­inn í Reykja­vík þegar Dagur kom í Höfða í dag til að vera við­staddur fund með Mike Pence, vara­for­seta Banda­ríkj­anna. 

Á­stæðan fyrir því að yfir­mað­ur­inn trúði ekki að Dagur gæti verið borg­ar­stjóri var sú að Dagur var hjólandi. „Ég hef aldrei hitt borg­ar­stjóra á hjóli áður,“ sagði yfir­mað­ur­inn á ensku við borg­ar­stjór­ann. 

Dagur greinir frá þessu á Twitt­er. Þar segir hann að eðli­legt svar við orðum yfir­manns­ins væru að allt væri ein­hvern tím­ann fyrst (e. first time for everyt­hing“).

Gríð­ar­legar örygg­is­ráð­staf­anir eru vegna heim­sóknar Pence til Íslands. Hátt í 300 manns eru í fylgd­ar- og örygg­is­liði for­set­ans og eru leyniskyttur meðal ann­ars stað­settar upp á höf­uð­stöðvum Arion banka, sem stað­settar eru við hlið Höfða. 



Þá var fjöl­mörgum götum lokað í höf­uð­borg­inni á meðan að á dvöl Pence stend­ur, en hann lenti skömmu fyrir klukkan eitt síð­degis og flýgur aftur af landi brott síðar í dag. 

Auglýsing
Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, tók á móti Pence í Höfða í dag um tvöleytið síð­deg­is. Í kjöl­farið tók hann þátt í umræðum um við­skipta- og fjár­festa­tengsl Íslands og Banda­ríkj­anna þar sem ýmsir full­trúar úr íslensku atvinnu­lífi og stjórn­sýslu ræddu við Pence og fylgd­ar­lið hans, ásamt Guð­laugi Þór Þórð­ar­syni utan­rík­is­ráð­herra.

Pence mun síðar í dag taka þátt í umræðum um örygg­is­mál á gamla her­svæð­inu í Kefla­vík og hitta Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra þar á stuttum fundi sem áætlað er að hefj­ist rétt fyrir klukkan 18:45.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent