Jónína Lárusdóttir hættir hjá Arion banka

Framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Arion banka hefur ákveðið að hætta störfum hjá bankanum.

JoninaSLarusdottir.jpg
Auglýsing

Jón­ína S. Lár­us­dótt­ir, sem verið hefur fram­kvæmda­stjóri lög­fræðis­viðs Arion banka um ára­bil, mun láta af störfum hjá bank­anum næst­kom­andi föstu­dag, 13. sept­em­ber. Ekki er til­greint í frétta­til­kynn­ingu frá bank­anum af hverju Jón­ína er að láta að störf­um. 

Jón­ína hefur verið fram­kvæmda­stjóri lög­fræðis­viðs og setið í fram­kvæmda­stjórn bank­ans í um níu ár eða frá nóv­em­ber 2010. 

Umtals­verðar hrær­ingar hafa verið í fram­kvæmda­stjórn Arion banka á þessu ári. Bene­dikt Gísla­son var ráð­inn í starf banka­stjóra bank­ans í júní­lok og tók við því starfi 1. júlí síð­ast­lið­inn. Hann tók við af Hös­k­uldi H. Ólafs­syni, sem hafði verið banka­stjóri í níu ár. Hösk­uldur fékk 150 millj­óna króna starfs­loka­greiðslu þegar hann hætti störf­um. 

Auglýsing

Bene­dikt var vara­­for­­maður starfs­hóps stjórn­­­valda um afnám fjár­­­magns­hafta á árunum 2013 til 2016 en hóf í kjöl­far þeirra starfa störf hjá Kaup­­þingi. Þar sat hann í stjórn á árunum 2016 til 2018. Hann hafði auk þess verið ráð­gjafi Kaup­­þings í mál­efnum Arion banka og setið í stjórn bank­ans frá árinu 2018. Bene­dikt er verk­fræð­ingur frá Háskóla Íslands.

Skömmu síðar var til­kynnt um að Ásgeir Helgi Reyk­­fjörð Gylfa­­son hefði verið ráð­inn aðstoð­­ar­­banka­­stjóri Arion banka og að hann myndi hefja störf með haustinu. Um nýtt hlut­verk er að ræða innan bank­ans.

Ásgeir hefur und­an­farin ár starfað sem fram­­kvæmda­­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs Kviku banka hf. Hann var með­­­limur í fram­­kvæmda­hópi um losun fjár­­­magns­hafta árið 2015 og áður starf­aði hann hjá MP banka sem yfir­­lög­fræð­ing­­ur, hjá LOGOS lög­­­manns­­þjón­­ustu í Reykja­vík og London og hjá Straumi fjár­­­fest­ing­­ar­­banka. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent