DV-samstæðan tapaði 240 milljónum króna í fyrra

Fjölmiðlafyrirtækið sem rekur DV og tengda miðla hefur tapað að minnsta kosti yfir 280 milljónum króna frá því að nýir eigendur tóku við haustið 2017.

7DM_0805_raw_2405.JPG
Auglýsing

Frjáls fjöl­miðlun ehf., sem gefur út DV, dv..is og tengda miðla, tap­aði 240 millj­ónum króna í fyrra. Þetta kemur fram í frétt á dv.­is.  

Þar er haft eftir Karli Garð­ars­syni, fram­kvæmda­stjóra félags­ins, að ráð­ist hafi verið í miklar aðhalds­að­gerðir í fyrra sem skili betri afkomu árið 2019. „Árið 2018 var fyrsta heila rekstr­arár félags­ins og það það tók tíma að ná tökum á rekstr­inum og grípa til nauð­syn­legra aðgerða.“ Rekstr­ar­tekjur sam­kvæmt frétt­inni voru 380 millj­ónir króna í fyrra. Rekstr­ar­kostn­aður hefur því verið um 600 millj­ónir króna, en tap félags­ins fyrir fjár­magnsliði, afskriftir og skatta var 214 millj­ónir króna.

Árs­reikn­ingi Frjálsrar fjöl­miðl­unar fyrir árið 2018 hefur ekki verið skilað til árs­reikn­inga­skrá­ar. 

Auglýsing

Ekki upp­lýst hver láni

Frjáls fjöl­miðlun ehf. tap­aði 43,6 millj­­­­­ónum króna á þeim tæpu fjórum mán­uðum sem félagið var starf­andi á árinu 2017. Því hefur félagið tapað 283,6 millj­ónum króna frá því að það tók við DV og tengdum miðlum haustið 2017.

Eig­andi Frjálsrar fjöl­mið­l­unar er félagið Dals­dalur ehf. Eini skráði eig­andi þess er Sig­­­­­urður G. Guð­jóns­­­­­son lög­­­­­­­­­maður sem er einnig skráður fyr­ir­svar­s­­­­­maður Frjálsrar fjöl­mið­l­unar hjá Fjöl­miðla­­­­­nefnd.

Skuldir félags­­­­­ins, sem er ein stærsta einka­rekna fjöl­miðla­­­­­sam­­­­­steypa lands­ins, voru 542 millj­­­­­ónir króna í lok árs 2017. Þar mun­aði mest um 425 milljón króna skuld við eig­and­ann, Dals­­­­­dal ehf. 

Sú skuld, sem virð­ist vaxta­­­­­laus, átti að greið­­­­­ast til baka á árunum 2018 til 2022, 85 millj­­­­­ónir króna á ári. Ekki kom fram í árs­­­­­reikn­ingi Dals­dals ehf. fyrir árið 2017 hver lán­aði því félagi fjár­­­­­­­­­magn til að lána Frjálsri fjöl­miðlun en þar segir að Dals­dalur eigi að greiða þeim aðila alla upp­­­­­hæð­ina til baka árið 2018, það er í fyrra. Árs­reikn­ingur Dals­dals fyrir árið 2018 hefur ekki borist árs­reikn­inga­skrá.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent