Fyrsta lækkun í hlutdeild nýbygginga síðan 2010

Fjölgun nýbygginga á síðustu árum hefur ekki verið nóg til að sporna gegn hækkandi meðalaldri íbúða í kaupsamningum. Hlutfall nýbygginga af kaupsamningum það sem af er ári er 11 prósent sem er töluverð lækkun frá því í fyrra.

Framkvæmdir á Valssvæðinu
Auglýsing

Hlut­deild nýbygg­inga í kaup­samn­ingum það sem af er ári nemur 11 pró­sentum og hefur lækkað nokkuð frá því í fyrra. Þetta er fyrsta lækk­unin í hlut­fall­i ný­bygg­inga ­síðan árið 2010. Á síð­ustu tveimur árum hefur sam­keppni á mark­aði nýbygg­inga auk­ist en merki þess má sjá í lengri með­al­sölu­tíma nýrra íbúða ásamt auknu hlut­falli þeirra sem selj­ast undir ásettu verð­i. 

Þetta kemur fram í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Íbúðalánasjóðs. 

Auglýsing

Hlut­deild nýbygg­inga breyst mikið

Mynd:Íbúðalánasjóður

Á síð­ustu 13 árum hefur hlut­deild nýbygg­inga í kaup­samn­ingum tekið miklum breyt­ing­um. ­Kaup og sala á nýbygg­ing­um, sem eru í mesta lagi tveggja ára gaml­ar, minnk­aði ört í kjöl­far efna­hags­hruns­ins árin 2008 og 2009, eftir að hafa fjölgað nokkuð umfram ann­ars konar fast­eigna­við­skipti í góð­ær­inu á und­an. 

Á árunum 2010 til 2018 jókst hlut­fall nýbygg­inga hins vegar aftur og fór úr þremur pró­sentum í 15 pró­sent, sam­hliða auk­inn­i ­í­búða­upp­bygg­ing­u. Það sem af er ári hefur hlut­fallið þó lækkað frá því í fyrra, en það er fyrsta lækk­unin milli ára síðan í efna­hags­hrun­in­u. 

Með­al­aldur íbúða 36 ár

Mynd: Íbúðalánasjóður

Í skýrsl­unni er þróun nýlegra íbúða sem hlut­fall af kaup­samn­ing­um, íbúðir sem eru yngri en tíu ára, einnig skoðuð en hún er ­tölu­vert ó­lík þróun nýbygg­inga. Hlut­fall nýlegra íbúða hefur lækkað nokkuð stöðugt á hverju ári frá 2007 og hefur nú nær helm­ing­ist úr 32 pró­sent niður í 17 pró­sent ef marka má kaup­samn­inga það sem af er ári. 

Skýrslu­höf­undar benda því á að íbúða­upp­bygg­ing síð­ustu ára virð­ist ekki hafa náð að sporna gegn öldrun íbúða, en með­al­aldur þeirra í kaup­samn­ingum hefur farið stöðugt hækk­andi á síð­ustu tólf árum. Með­al­ald­ur­inn hefur hækkað úr 28 árum í 36 ár frá árinu 2007. 

Verð­munur nýbygg­ina og ann­ara íbúða kom­inn niður í 9 pró­sent

Enn frem­ur kemur fram í skýrsl­unni að sam­hliða auknum fjölda nýbygg­inga hefur verð­munur þeirra og ann­arra íbúða minnkað úr 30 pró­sentum niður í 9 pró­sent á árunum 2014 til 2018. Þessi þróun gefur til kynna að selj­endur nýrra íbúða hafi þurft að láta undan þrýst­ingi frá kaup­endum og gefa afslátt af íbúðum sínum í auknum mæli til þess að geta selt þær. 

Hlut­fall nýrra íbúða sem selj­ast undir ásettu verði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur farið úr 22 pró­sentum í júlí 2017 í 52 pró­sent síð­ast­lið­inn júlí. Til sam­an­burðar hefur sam­svar­andi hlut­fall gam­alla íbúða hald­ist nokkuð stöðugt í 80 pró­sent síð­ustu fimm árin, ef frá er talin tíma­bundin lækkun árið 2017 sem gekk skjótt til bak­a. 

Á síð­ustu tveimur árum hefur með­al­sölu­tími nýrra íbúða einnig auk­ist á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Með­al­sölu­tím­inn hefur farið úr 129 dögum í júlí 2017 upp í 214 daga í júlí ­síð­ast­liðn­um. Á sama tíma hefur með­al­sölu­tími ann­arra íbúða hald­ist nokkurn veg­inn stöð­ugur í 70–90 dög­um. 

Sam­kvæmt Íbúða­lána­sjóði bendir þetta allt til að virk­ari sam­keppni sé nú á mark­aði nýbygg­inga kaup­endum í hag. 

Líkur á fyr­ir­hug­uðum fast­eigna­kaupum minnkað lít­il­lega

Líkur ein­stak­linga á að kaupa sér­ fast­eign á næstu sex mán­uðum hefur lækkað lít­il­lega frá því í mars í fyrra, bæði utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og innan þess, sam­kvæmt ­nið­ur­stöð­u­m könn­unar sem Zenter ­gerði fyrir Íbúða­lána­sjóðs. 

Þessar nið­ur­stöður eru nokkuð á skjön við vísi­tölu fyr­ir­hug­aðra hús­næð­is­kaupa frá Gallup, sem mældi mikla hækkun á þeim mæli­kvarða milli mars og júní í ár.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent