Megum líka varast þá kvíðafullu og reiðu

Forseti Íslands flutti setningarræðu sína á Alþingi í dag.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, við þingsetningu í dag.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, við þingsetningu í dag.
Auglýsing

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, sagði í setn­ing­ar­ræðu sinni á Alþingi í dag, að lýð­ræðs­hefðin væri best varin með rök­ræðu, hlustun og end­ur­mati, en ekki yfir­gangi, þótta og skoð­ana­hroka. „En vand­inn er bara þessi: Við búum ekki í ver­öld hinna ein­földu lausna, hinna algildu sann­inda. Við getum dáðst að Bjart­i í Sum­ar­hús­um, þraut­seigju hans og frels­is­leit. Um leið má samt setja út á þrá­kelkni hans og eig­ingirni, skap­bresti sem leiddu hörm­ungar yfir aðra. Þetta er úr skáld­skap en raun­heimar geyma svip­aðan lær­dóm um margar hliðar einn­ar ­sögu. Við getum þannig dáðst að dugn­aði okkar manna í þorska­stríð­unum en við­ur­kennt um leið að meira þurfti til að landa sigri, þróun haf­réttar sem var okkur í vil og ekki skemmdi fyrir að skipta máli í átökum aust­urs og vest­ur­s. Nú virð­ast þeir tímar reyndar runnir upp að land okkar sé að margra mati í þjóð­braut á ný. Þá ríður á að greina milli var­kárni og tor­tryggni, standa fast á sínu en ótt­ast ekki umheim­inn,“ sagði Guðni.

Auglýsing
Í ræðu sinni sagði Guðni enn frem­ur, að Ísland væri opið fyrir umheim­inum og það sem gerð­ist í heim­inum hefði áhrif á Íslandi. „Óvissa er í raun annað orð yfir fram­tíð. Satt er það að var­kárni er góðra gjalda verð. Við megum var­ast þá and­vara­lausu og þá kæru­lausu, það sanna ­dæm­in. En við megum líka var­ast þá kvíða­fullu, þá hræddu og þá reiðu. Þær ­stundir geta einmitt komið að við höfum ekk­ert að ótt­ast nema þá ótta­slegn­u,“ sagði Guðn­i. 

Guðni óskaði Alþing­is­mönnum góðs geng­ist í verkum sínum fyrir land og þjóð, og minnti á að eng­inn væri stærri en emb­ættið sem þeim hafði verið treyst fyr­ir. „Eng­inn er full­kom­inn, öll erum við breysk, ágæt­u al­þing­is­menn. Og ekk­ert okkar er stærra en það emb­ætti sem fólkið í land­in­u hefur treyst okkur fyr­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent