Mjólkurvinnslan Arna í Bolungarvík skýst beint í fimmta sæti lista MMR yfir þau fyrirtæki sem Íslendingar mæla helst með en fyrirtækið var í fyrsta skipti mælt í ár. 40 prósent Íslendinga segjast nú nota vörur frá Örnu að staðaldri.
Þetta kemur fram í nýjustu mælingum MMR á meðmælavísitölu 135 þjónustu- og framleiðslufyrirtækja.
Meðmælavísitalan byggir á Net Promoter Score aðferðafræðinni en meðmælavísitalan byggir, líkt og nafnið bendir til, á mælingum á því hversu líklegir einstaklingar eru til að mæla með, eða hallmæla, fyrirtækjum sem þau hafa átt viðskipti við.
Fjarðarkaup var efst á listanum annað árið í röð. Í tilkynningu MMR segir að greinilegt sé að verslunin hafnfirska kunni að höfða til viðskiptavina sinna en fyrirtækið hafi hvað eftir annað skákað stærri verslunarkeðjum og hafi verið á meðal 10 efstu fyrirtækja í meðmælavísitölunni frá því að mælingar hófust árið 2014.
„Þá vekur sérstaka athygli að Arna rýkur upp lista ársins og hafnar í fimmta sæti en 40 prósent svarenda könnunarinnar kváðust reglulega versla vörur fyrirtækisins, hærra hlutfall viðskiptavina en hjá nokkru öðru fyrirtæki á lista þeirra fimm efstu. Það er því nokkuð ljóst að landsmenn hafa heldur betur tekið vel við tilraunum þessarar ungu og efnilegu mjólkurvinnslu til að hrista upp í mjólkurvörumarkaðnum,“ segir í tilkynningunni.
Þá kemur fram hjá MMR að fleiri smærri fyrirtæki skáki risunum í atvinnugreinum sínum og megi þar nefna nýliða Hreyfingar og Reebok Fitness sem koma með látum inn á lista efstu fyrirtækja meðmælavísitölunnar. „Það er greinilegt að líkamsrækt á stóran sess í hjörtum landsmanna en Hreyfing fylgir fast á hæla Fjarðarkaups í öðru sætinu og Reebok Fitness vermir það níunda.“
Breyting er á vinsældum eldsneytis- og smásöluþjónustu Costco en alþjóðlegi verslunarrisinn var þetta árið bæði mældur í atvinnugreinum matvöruverslana og olíufélaga eftir að hafa einungis verið fyrir í flokki matvöruverslana síðustu tvö ár. Nokkurn mun er að finna á velgengni fyrirtækisins í þessum tveimur flokkum en eldsneytisþjónusta Costco kemur sér fyrir í þriðja sæti meðmælavísitölunnar í ár, allnokkru ofar en smávöruverslun Costco sem fellur af lista tíu efstu fyrirtækja.