Níu manns hafa sótt um stöðu framkvæmdastjóra fjármálastöðugleikasviðs í Seðlabanka Íslands. Á meðal umsækjenda eru Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, Guðrún Ögmundsdóttir, forstöðumaður lausafjáráhættu og fjármálafyrirtækja hjá Seðlabankanum og Bryndís Ásbjarnardóttir, forstöðumaður þjóðhagsvarúðar hjá Fjármálaeftirlitinu. Þetta kemur fram í frétt RÚV.
Auglýsing
Þeir sem sóttu um eru:
- Arnar Ingi Einarsson
- Árni Árnason
- Ásdís Kristjánsdóttir
- Bryndís Ásbjarnardóttir
- Eggert Þröstur Þórarinsson
- Guðrún Ögmundsdóttir
- Gunnar Jakobsson
- Haukur C. Benediktsson
- Þorsteinn Þorgeirsson
Samkvæmt RÚV sóttu þrír aðrir um starfið en hafa þeir dregið umsókn sína til baka.