Útgáfufélagið Stundin ehf. skilaði rúmlega 10 milljóna króna afgangi af rekstri sínum í fyrra. Afkoma félagsins er fjórum milljónum króna jákvæðari en á árinu 2017. Þá hefur ný stjórn Stundarinnar verið kjörin og er Elín G. Ragnarsdóttir nýr stjórnarformaður. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Stundinni.
Afkoma ársins í samræmi við markmið Stundarinnar
Stundin er í dreifðu eignarhaldi og eru stærstu eigendur ritstjórarnir Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir og Jón Trausti Reynisson, vefhönnuðurinn Jón Ingi Stefánsson, sölustjórinn Heiða B. Heiðarsdóttir, fyrrverandi ritstjórinn Reynir Traustason og svo Snæbjörn Björnsson Birnir og Höskuldur Höskuldsson, með rúmlega 12 prósenta hlut hvert.Í skýrslu stjórnar kemur fram að afkoma ársins 2018 sé í samræmi við markmið Stundarinnar um að forðast hallarekstur og skuldsetningu til að viðhalda sjálfstæði ritstjórnar. Stundin skilaði rúmlega 10 milljóna króna rekstrarafgangi en tekið er fram í fréttatilkynningunni að í ársreikningunum fyrir síðasta ár eru fyrirvarar um óuppgerð dómsmál sem höfðuð hafa verið gegn Stundinni og starfsmönnum hennar. Þar á meðal er lögbannsmál Glitnis HoldCo gegn Stundinni, sem Stundin vann á yfirstandandi fjárhagsári.
Meirihluti tekna Stundarinnar eru tilkomnar vegna áskrifta. „Við erum þakklát fyrir að stærsti hluti rekstrartekna Stundarinnar spretti frá almennum borgurum sem hafa kosið að gerast áskrifendur. Þetta tryggir að rekstrarlegir hagsmunir Stundarinnar eru sem mest í samhengi við hagsmuni almennings,“ segir Jón Trausti Reynisson, framkvæmdastjóri Útgáfufélagsins Stundarinnar.
Elín G. Ragnarsdóttir nýr stjórnarformaður
Ný stjórn hefur tekið við taumunum á Stundinni. Í fráfarandi stjórn sátu Heiða B. Heiðarsdóttir, Jón Ingi Stefánsson og Reynir Traustason. Ný stjórn er skipuð tveimur af eigendum, sem þó eru ekki starfsmenn félagsins, og svo óháðum stjórnarformanni en við stjórnarkjörið var litið til þess að styrkja formlegt aðhaldshlutverk stjórnarinnar gagnvart starfsmönnum sem jafnframt eru eigendur.
Nýr stjórnarformaður Stundarinnar er Elín G. Ragnarsdóttir en hún hefur meðal annars rekið bókaútgáfu og stýrt fjölmiðlafyrirtæki. Stjórnarmaðurinn Höskuldur Höskuldsson hefur á undanförnum árum rekið innflutningsfyrirtæki í heilbrigði. Stjórnarmaðurinn Egill Sigurðarson er stærðfræðingur og forritari, búsettur í London, menntaður frá Háskólanum í Reykjavík og Oxford-háskóla.