„Það er ljótur leikur hjá stjórnvöldum að senda hina sýknuðu í enn eina óvissuferðina inn í dómskerfið til að leita réttar síns. Þvert á gefin loforð.“
Þetta segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, en hún hefur gagnrýnt stjórnvöld harðlega í dag - þar á með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra - fyrir að taka ekki með öðrum hætti á Geirmundar- og Geirfinnsmálinu.
Eins og greint var frá í dag, í Fréttablaðinu, þá telur ríkislögmaður að Guðjón Skarphéðinsson, einn þeirra sem sem sýknaðir voru í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, ekki eiga rétt á bótum. Er það meðal annars rökstutt með því að hann hafi sjálfur átt sök á því að hann var ranglega dæmdur. Guðjón stefndi ríkinu í júní á þessu ári og krafðist 1,3 milljarða króna bóta en sáttaviðræður höfðu þá siglt í strand. Guðjón, líkt og aðrir sem áður voru sakfelldir, hefur barist fyrir réttlátri málsferð, áratugum saman.
Guðjón var handtekinn 12. nóvember 1976 og lauk afplánun 12. október 1981. Hann var því sviptur frelsi sínu í tæp 5 ár.
Þorgerður Katrín segir á Facebook síðu sinni að „hrópandi ósamræmi“ sé á milli þess sem kemur fram í greinargerð ríkislögmanns og síðan vilja hennar sem forsætisráðherra.
„Katrín er ein reynslumesta stjórnmálakona landsins og situr nú í forsæti í ríkisstjórn. Ríkisstjórn sem virðist hins vegar ekki standa fyrir neitt nema halda völdum. Hún getur gert miklu betur og á með réttu að vera í stöðu til að stýra þannig að það fari ekki á milli mála hver hennar áherslumál, hugsjónir og stefna eru. En í hverju málinu á eftir öðru veldur hún flokki sínum vonbrigðum og ýtir undir tilfinningu hjá öðrum að það eina sem skipti máli sé að halda völdum sama hvað. Það er eins og málamiðlun stjórnarflokkanna hafi ýtt hugmyndum, hugsjónum og fólki til hliðar.
Forsætisráðherra segist nú, líkt og áður, ætla að finna lausn í Guðmundar- og Geirfinnsmálum sem aðilar geti verið sáttir við sem er í hróplegu ósamræmi við hljóðið í greinargerð ríkisins.
Sakborningar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu og fjölskyldur þeirra hafa þurft að þola nóg. Það eina sem er sorglegra en að þau hafi verið rænd lífsviðurværi sínu og ærunni er að þau þurfi enn að standa í baráttu við kerfið. Eftir allt sem á undan er gengið.
Þegar uppi er staðið er þetta spurning um prinsipp. Hvort ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur sé tilbúin til að rétta ranglætið og standa við gefin loforð eða hvort hún ætli sér að draga lappirnar og viðhalda ofbeldi ríkisins í garð sakborninganna,“ segir Þorgerður Katrín.