Isavia afskrifaði 2,1 milljarð vegna WOW air

Isavia tapaði miklu fyrri hluta ársins. Stærsta hluta tapsins má rekja til niðurfærslu á kröfu á WOW air, sem fór í þrot í mars.

Leifsstöð
Auglýsing

Isa­via, fyr­ir­tæki í eigu rík­is­ins sem á og rekur meðal ann­ars Kefla­vík­ur­flug­völl, tap­aði rúm­lega 2,5 millj­örðum króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Tap félags­ins fyrir skatta og fjár­magnsliði var 942 millj­ónir króna. 

Ástæðan fyrir hinu mikla tapi er fyrst og síð­ast sú að fyr­ir­tækið færði niður kröfu sína á WOW air um tæp­lega 2,1 millj­arð króna. WOW air fór í þrot í lok mars síð­ast­lið­ins. 

Rekstr­ar­af­koma Isa­via á fyrri hluta árs­ins 2018 var jákvæð upp á tæpa 1,6 millj­arða króna.  Því er um að ræða við­snún­ing upp á 4,1 millj­arð króna milli ára. 

Auglýsing

Í til­kynn­ingu frá Isa­via segir að þessa breyt­ingu megi „ einkum rekja til auk­innar nið­ur­færslu við­skiptakrafna upp á 2.054 millj­ónir króna, nei­kvæðra geng­is­á­hrifa vegna erlendra lána upp á 1.989 millj­ónir króna og minnk­andi tekna upp á 854 millj­ónir króna. ­Þrátt fyrir fækkun ferða­manna, einkum skiptifar­þega, varð ekki breyt­ing á mestu álags­tímunum á Kefla­vík­ur­flug­velli. Þetta setti félag­inu þröngar skorður varð­andi nið­ur­skurð. Þá þótti félag­inu ekki fært annað en að fram­kvæma reikn­ings­halds­lega nið­ur­færslu á ríf­lega tveggja millj­arða kröfu vegna WOW air.“

Vélin kyrr­setta flogin á brott

Svein­björn Ind­riða­son, for­stjóri Isa­via, segir að afkoman beri þess skýrt merki að WOW air hafi orðið gjald­þrota í mar­s. ­Ferða­mönnum sem fóru um Kefla­vík­ur­flug­völl fyrstu sex mán­uði þessa árs hafi fækkað um hátt í 900 þús­und, eða 20,3 pró­sent sam­an­borið við sama tíma­bil í fyrra. 

Við þetta hafi bæst deilur vegna kyrr­setn­ingar á þotu sem WOW air hafði verið með í rekstri, en Isa­via hafði kyrr­sett og ætlað sér að nota sem trygg­ingu fyrir greiðslu skulda félags­ins við sig. Svein­björn segir að ákvörð­un Hér­aðs­dóms Reykja­ness um að fresta ekki rétt­ar­á­hrifum úrskurðar um afhend­ingu þot­unnar hafi komið í veg fyrir að kyrr­setn­ing­ar­málið færi eðli­lega leið í dóms­kerf­inu og gert það að verkum að vél­inni umræddu hafi nú verið flogið af landi brott. „Við teljum þá ákvörðun hér­aðs­dóm­ara ámæl­is­verða, en erum að leita leiða til að koma mál­inu á ný á  æðra dóm­stig.“

WOW skuld sem jókst sífellt

Vand­ræði WOW air byrj­uðu fyrir alvöru á síð­asta ári og þá byrj­aði skuld flug­fé­lags­ins við Isa­via að hlað­ast upp­. Isa­via og WOW air gerðu sam­komu­lag um það í lok sept­em­ber 2018, skömmu eftir að skulda­bréfa­út­boði í WOW air hafði verið lok­ið, hvernig félagið átti að greiða upp skuld sína við Kefla­vík­ur­flug­völl. Skuld WOW air við Isa­via hafði vaxið hratt mán­uð­ina á und­an, og stóð í rúm­lega millj­arði króna í lok júlí 2018. Þá hafði hún tvö­fald­ast á rúmum mán­uði. Hún end­aði í mun hærri upp­hæð.

Isa­via taldi sig geta tryggt að skuldin feng­ist greidd með vegna þess að ákvæði loft­ferða­laga ættu að heim­ila fyr­ir­tæk­inu að kyrr­setja vél WOW air til að tryggja greiðslu gjalda sem væru gjald­fall­inn.

Þegar WOW air fór svo loks í þrot í lok mars var skuld félags­ins við Isa­via vel yfir tveir millj­arðar króna. Vélin sem var kyrr­sett fyrir greiðslu þeirrar skuld­ar, og WOW air hafði haft til umráða, var hins vegar ekki í eigu WOW air heldur hafði félagið leigt hana. Eig­and­inn var Air Lease Cor­poration (ALC) og hann hafði engan áhuga á því að borga skuld WOW air til að losa vél­ina sína.

Deilur vegna þessa röt­uðu fyrir Hér­aðs­dóm Reykja­nes sem komst hann að þeirri nið­ur­stöðu að ALC þyrfti ekki að greiða allar þær skuldir WOW air gagn­vart Isa­via sem safn­ast höfðu upp heldur ein­ungis þær skuldir sem tengd­ust beint þot­unni sem kyrr­sett var.

Þetta gerði það að verkum að Isa­via þurfti að afskrifa kröfu vegna WOW air sem nam 2,8 millj­örðum króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent