Gengið á GAMMA: Anglia nánast helmingaðist

Sjóður í stýringu hjá GAMMA sem átti að fjárfesta í Bretlandi fyrir milljarða var færður verulega niður í gær. Gengi hans var þá fært úr 105 í 55.

Sjóðurinn átti að fjárfesta í áhugaverðum verkefnum í London eftir að fjármagnshöftum var lyft á Íslandi.
Sjóðurinn átti að fjárfesta í áhugaverðum verkefnum í London eftir að fjármagnshöftum var lyft á Íslandi.
Auglýsing

Gengið á GAMMA: Ang­lia, fimm millj­arða króna sjóði sem stofn­aður var sum­arið 2017 til að fjár­festa í ýmsum verk­efnum í Bret­landi, var í gær fært niður úr 105 í 55, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Það þýðir að sá sem átti í sjóðnum fyrir t.d. 105 millj­ónir króna átti 55 millj­óna króna eign í honum eftir nið­ur­færsl­una. 

Einn þeirra sem átti í sjóðnum var Lífs­verk líf­eyr­is­sjóð­ur. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá honum hefur eign sjóðs­ins í Ang­li­a-­sjóðnum verið færð niður um 43 millj­ónir króna frá upp­haf­legum kaupum sem áttu sér stað í júlí 2017. 

GAMMA: Ang­lia, var stofn­aður sum­arið 2017. Um var að ræða fimm millj­­arða króna fast­­eigna­­sjóð í London sem átti að fjár­­­festa í hinum ýmsu verk­efn­­um. Sjóð­ur­inn var stofn­aður til að gera íslenskum aðilum kleift að fjár­festa erlendis eftir að gjald­eyr­is­höftum var lyft snemma árs 2017. Þeir sem settu fé í í sjóð­inn voru íslenskir ein­stak­ling­ar, trygg­inga­fé­lag og líf­eyr­is­sjóð­ir. 

Líf­eyr­is­sjóður færir niður um 64 millj­ónir

GAMMA: Ang­lia var annar tveggja sjóða í stýr­ingu hjá GAMMA sem var færður veru­lega niður í gær. Hinn heitir GAMMA: Novus. Kjarn­inn greindi frá því síð­degis í gær að eigið fé Novu­s-­sjóðs­ins hefði verið lækkað úr 4,4 millj­örðum króna um ára­mót í 42 millj­ónir króna eftir end­ur­mat á eign­um. GAMMA er í dag í eigu Kviku banka, en bank­inn keypti félagið fyrr á þessu ári. Hann mun þó ekki bera neitt tap vegna sjóð­anna heldur hlut­deild­ar­skír­tein­is­hafar sem keyptu í þeim.

Auglýsing
Lífeyrissjóður Vest­manna­eyja er á meðal þeirra sem átti hlut­deild­ar­skír­teini í GAMMA: Novus. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá sjóðnum keypti hann hlut­deild­ar­skír­teini í Novus fyrir 100 millj­ónir króna en hafði selt í honum fyrir 34 millj­ónir króna. Nettó fjár­fest­ing sjóðs­ins er því um 66 millj­ónir króna. 

Verð­mat eignar líf­eyr­is­sjóðs Vest­manna­eyja var 155,3 millj­ónir króna í lok ágúst síð­ast­lið­ins. Verð­matið í gær, mán­uði síð­ar, var 1.694 þús­und krón­ur. Það hafði því lækkað um vel yfir 150 millj­ónir króna á nokkrum vik­um.

Raun­veru­leg nið­ur­færsla á eign sjóðs­ins er því, miðað við núver­andi stöðu, 64,3 millj­ónir króna. 

Tvö trygg­inga­fé­lög, TM og Sjó­vá, hafa þegar greint frá því að þau hafi fært niður virði fjár­fest­inga­eigna sinna vegna eignar sinnar í Novus. TM sendi frá sér afkomu­við­vörun í gær­morgun þar sem fram kom að bók­fært tap félags­ins vegna Novus væri um 300 millj­ónir króna.

Sjóvá færði niður virði fjár­fest­inga­eigna sinna um 155 millj­ónir króna vegna eignar í sama sjóði. Bæði félög eru meðal ann­ars í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða, sem taka þannig á sig óbeint tap vegna nið­ur­færsl­unn­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent