FME herðir á eiginfjárkröfum Arion banka

FME framkvæmir árlega mat á áhættuþáttum í kerfislega mikilvægum fjármálastofnunum hér á landi.

Arion Banki
Auglýsing

Eftir árlegt mat Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME) á áhættu­þætti í starf­semi Arion banka mun bank­inn þurfa að við­halda hærri við­bót­ar­eig­in­fjár­kröfu en fyrra mat eft­ir­lits­ins gerði ráð fyr­ir. 

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Arion banka til kaup­hall­ar­innar

„Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) leggur árlega mat á áhættu­þætti í starf­semi kerf­is­lega mik­il­vægra fjár­mála­fyr­ir­tækja í könn­un­ar- og mats­ferli (e. Supervis­ory Review and Evalu­ation Process, SREP). Ferlið felur m.a. í sér mat á eig­in­fjár­þörf fjár­mála­fyr­ir­tækja sem leiðir af sér við­bót­ar­eig­in­fjár­kröfu undir Stoð II (e. Pillar II).

Auglýsing

Nið­ur­staða þessa árlega ferlis fyrir Arion banka liggur nú fyr­ir. Bank­inn skal við­halda við­bót­ar­eig­in­fjár­kröfu sem nemur 3,1% af áhættu­grunni, sem er hækkun um 0,2 pró­sentu­stig frá fyrra mati. Heild­ar­eig­in­fjár­krafa bank­ans, að teknu til­liti til eig­in­fjár­auka, hækkar við það úr 19,8% í 20,0%.

Hækkun sveiflu­jöfn­un­ar­auka skv. ákvörðun FME í febr­úar 2019 mun taka gildi fyrir íslenskar fjár­mála­stofn­anir í febr­úar 2020 og við það hækkar eig­in­fjár­krafan í 20,3% að öðru óbreytt­u,“ segir í til­kynn­ingu Arion banka. 

Eigið fé Arion banka var 195,3 millj­arðar króna um mitt þetta ár. Heild­ar­eignir voru 1.233,4 millj­arðar króna og skuldir 1.038 millj­arð­ar.

Eins og greint hefur verið frá, hefur bank­inn, undir stjórn Bene­dikts Gísla­sonar banka­stjóra, gripið til umfangs­mik­illa skipu­lags­breyt­ingar til að styrkja rekstr­ar­grunn bank­ans. Fyrir mán­að­ar­mót var 100 starfs­mönnum sagt upp störf­um, þar af 80 í höf­uð­stöðvum og 20 í úti­bú­um. Þá sagði dótt­ur­fé­lag bank­ans, Valitor, upp 12 starfs­mönnum á sama tíma. 

Skipu­lags­breyt­ing­arnar hafa það að mark­miði, að ná kostn­að­ar­hlut­falli, það er hlut­falli rekstr­ar­kostn­aðar af tekj­um, niður í 50 pró­sent og arð­semi eigin fjár bank­ans í 10 pró­sent. 

Mark­aðsvirði bank­ans lækk­aði um 2,2 pró­sent í dag og er það nú um 144 millj­arðar krón­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent