Starfsmaður embættis forseta Íslands var sendur í leyfi og fékk skriflega áminningu frá forsetaritara vegna athæfis sem hann sýndi af sér í vinnu- og námsferð starfsmanna embættisins til Parísar 13.-16. september síðastliðinn. Starfsmanninum hefur hins vegar verið leyft að snúa aftur til starfa eftir að beðið hlutaðeigandi afsökunar og leitað sér sérfræðiaðstoðar.
Í yfirlýsingu frá Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, segir: „Í ferðinni varð einn starfsmaður embættisins sekur um óþolandi athæfi gagnvart tveimur í ferðahópnum, kynferðislega áreitni í opnu rými og annað háttalag sem aldrei verður fallist á að afsaka megi á nokkurn hátt. Eftir heimkomu greip embættið til viðeigandi aðgerða, meðal annars með hliðsjón af stefnu og áætlun Stjórnarráðsins gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni, ofbeldi og annarri ótilhlýðilegri háttsemi. Um leið og ég varð áskynja um það ólíðandi athæfi sem viðhaft var aflaði ég mér allra mögulegra upplýsinga, meðal annars með viðtölum við alla þá sem málið varðaði. Starfsmaðurinn fór í leyfi og forsetaritari veitti honum skriflega áminningu.“
Í yfirlýsingu Guðna segir enn fremur að starfsmanninum hafi auk þess verið gert ljóst að ekki yrði látið þar við sitja. „Í framhaldinu hefur viðkomandi starfsmaður beðið hlutaðeigandi afsökunar og leitað sér sérfræðiaðstoðar. Þeir aðilar sem brotið var gegn ‒ ágætt samstarfsfólk mitt ‒ hafa í öllu ferlinu verið upplýstir um stöðu og þróun mála og hafa fallist á þær ákvarðanir sem teknar hafa verið, án þess auðvitað að þurfa að bera að nokkru leyti ábyrgð á brotum sem þeir þurftu að þola. Formlegu ferli málsins er þannig lokið með samþykki allra þeirra aðila sem málið varðar og starfsmanni var heimilað að snúa aftur til starfa að uppfylltum tilteknum skilyrðum.“
Tilefni yfirlýsingar forsetans er frétt sem birtist á vef Fréttablaðsins fyrr í dag þar sem greint var frá því að tvær kvartanir hefðu borist til embættis forseta Íslands vegna ámælisverðrar hegðunar starfsmann skrifstofu hans gegn samstarfskonum. Þar sagði að annað atvikið hefði átt sér stað í París en hitt hér á landi.
Örnólfur Thorsson forsetaritari vill ekki tjá sig meira um málið í samtali við Kjarnann. „Yfirlýsing forsetans er það sem við höfum að segja um málið,“ segir hann.