Hluti þeirra sem keyptu skuldabréf sem gefin voru út af sjóðnum GAMMA: Novus í sumar hefur samþykkt að leggja honum til einn milljarð króna og lækka vaxtargreiðslur af skuldabréfunum. Frá þessu var fyrst greint á vef Fréttablaðsins.
Þar segir að haldinn hafi verið fundur með skuldabréfaeigendum í húskynnum GAMMA í morgun og að þar hafi helstu skuldabréfaeigendur samþykkt að lækka vexti úr 15-16,5 prósentum í sex prósent en tengja þá jafnframt afkomu fasteignafélagsins Upphafs, einu eignar GAMMA: Novus. Þá var samþykkt að auka fjármagn með kaupum á forgangsskuldabréfi upp á einn milljarð króna. Alls þurfa 90 prósent skuldabréfaeigendanna að samþykkja breytinguna til að hún verði að veruleika og er stefnt að því að það verði frágengið á næstu dögum.
Í fréttatilkynningu sem GAMMA sendi frá sér rétt í þessu kemur fram að fyrir fundinn hafi fjárfestum verið „kynnt áætlun nýs stjórnendateymi GAMMA um að tryggja framgang framkvæmda á vegum fasteignafélagsins Upphafs, sem er að fullu í eigu fagfjárfestasjóðsins Novus sem er í stýringu hjá GAMMA. Upphaf er nú á hápunkti framkvæmda með 277 íbúðir í byggingu og eru áætluð lok allra framkvæmda í lok árs 2020. Áætlunin miðar að því að tryggja tekjur af sölu íbúða og hámarka virði eigna. Til þess að áætlunin gangi eftir er unnið með fjárfestum að því að klára skilmála hins nýja skuldabréfs.“
Eigið fé þurrkaðist út
Samkvæmt ársuppgjöri ársins 2018 var eigið fé fagfjárfestasjóðsins GAMMA: Novus metið á 4,4 milljarða króna. Eftir nýlegt endurmat á eignum sjóðsins er eigið fé hans hins vegar áætlað 42 milljónir króna. Það var því ofmetið um rúmlega 4,3 milljarða króna um síðustu áramót.
Helsta eign sjóðsins er Upphaf fasteignafélag slhf. og í einblöðungi sem nýverið var sendur á þá sem fjárfestu í sjóðnum kom fram að undanfarið hafi nýtt teymi sérfræðinga, auk utanaðkomandi ráðgjafa, unnið að málefnum sjóðsins. Upphaf stendur fyrir byggingu á nokkur hundruð íbúðum á höfuðborgarsvæðinu.
Í einblöðungnum kom einnig fram að breytingar á stöðu sjóðsins skýrist af mörgum þáttum. Meðal annars hafi raunveruleg framvinda tiltekinna verkefna verið ofmetin. „Þá hefur framkvæmdakostnaður verið talsvert yfir áætlunum á árinu. Fyrri matsaðferðir tóku ekki að fullu tillit til fjármagnskostnaðar félagsins auk þess sem hann hækkaði verulega með útgáfu skuldabréfs (UPPH21 0530) í vor. Væntingar um söluverð íbúða og þróunareigna hafa einnig verið endurmetnar.“
Staða Upphafs væri þannig að það glímdi „nú við lausafjárvanda en nýir stjórnendur hafa lagt fram áætlun um framtíð félagsins þar sem m.a. er unnið að viðbótarfjármögnun til að mæta lausafjárvandanum. Unnið er að útgáfu nýs forgangsskuldabréfs að fjárhæð 1 ma.kr. til að klára þær framkvæmdir sem félagið hefur með höndum til að hámarka virði eigna. Gert er ráð fyrir að niðurstöður viðræðna um frekari fjármögnun liggi fyrir um miðjan október 2019.“
Skuldabréf seld með veði í eignum
Í júní var skuldabréfaútboð sem tryggði sjóðnum 2,7 milljarða króna klárað. Margir sem að því komu telja að það hafi farið fram á blekkingargrundvelli, enda var eigið fé GAMMA: Novus þá sagt vera tæplega fjórir milljarðar króna. Reyndar gekk alls ekki vel að selja útgáfuna til að byrja með. Viðmælendur Kjarnans úr fjármálageiranum segja að það hafi þurft að hækka vextina verulega til að því. Á endanum urðu þeir að lágmarki 15 prósent og áttu að greiðast í einni greiðslu með höfuðstólnum þann 30. maí 2021.
Útgáfudagur skuldabréfaflokksins var 5. júní 2019.
Skuldabréfin voru seld með veði í fjölmörgum eignum, meðal annars öllu hlutafé í Upphafi fasteignafélagi, Upphafi fasteignum og fjórum öðrum félögum. Auk þess voru ýmsar fjárkröfum settar að veði og hlutdeildarskírteini í eigu Upphafs í Almenna leigufélaginu eignarhaldssjóði.