Skuldabréfaeigendur GAMMA: Novus lækka vexti og leggja til nýtt fé

Fjárfestingasjóðurinn GAMMA: Novus, sem var færður niður nánast að öllu leyti nýverið, hefur tryggt sér fjármagn til að forða einu eign hans, fasteignafélaginu Upphafi, frá gjaldþroti.

hús
Auglýsing

Hluti þeirra sem keyptu skulda­bréf sem gefin voru út af sjóðnum GAMMA: Novus í sumar hefur sam­þykkt að leggja honum til einn millj­arð króna og lækka vaxt­ar­greiðslur af skulda­bréf­un­um. Frá þessu var fyrst greint á vef Frétta­blaðs­ins.

Þar segir að hald­inn hafi verið fundur með skulda­bréfa­eig­endum í húskynnum GAMMA í morgun og að þar hafi helstu skulda­bréfa­eig­endur sam­þykkt að lækka vexti úr 15-16,5 pró­sentum í sex pró­sent en tengja þá jafn­framt afkomu fast­eigna­fé­lags­ins Upp­hafs, einu eignar GAMMA: Novus. Þá var sam­þykkt að auka fjár­magn með kaupum á for­gangs­skulda­bréfi upp á einn millj­arð króna. Alls þurfa 90 pró­sent skulda­bréfa­eig­end­anna að sam­þykkja breyt­ing­una til að hún verði að veru­leika og er stefnt að því að það verði frá­gengið á næstu dög­um.

Í frétta­til­kynn­ingu sem GAMMA sendi frá sér rétt í þessu kemur fram að fyrir fund­inn hafi fjár­festum verið „kynnt áætlun nýs stjórn­enda­teymi GAMMA um að tryggja fram­gang fram­kvæmda á vegum fast­eigna­fé­lags­ins Upp­hafs, sem er að fullu í eigu fag­fjár­festa­sjóðs­ins Novus sem er í stýr­ingu hjá GAMMA. Upp­haf er nú á hápunkti fram­kvæmda með 277 íbúðir í bygg­ingu og eru áætluð lok allra fram­kvæmda í lok árs 2020. Áætl­unin miðar að því að tryggja tekjur af sölu íbúða og hámarka virði eigna. Til þess að áætl­unin gangi eftir er unnið með fjár­festum að því að klára skil­mála hins nýja skulda­bréfs.“

Auglýsing

Eigið fé þurrk­að­ist út

Sam­­kvæmt árs­­upp­­­gjöri árs­ins 2018 var eigið fé fag­fjár­­­festa­­sjóðs­ins GAMMA: Novus metið á 4,4 millj­­arða króna. Eftir nýlegt end­­ur­­mat á eignum sjóðs­ins er eigið fé hans hins vegar áætlað 42 millj­­ónir króna. Það var því ofmetið um rúm­­lega 4,3 millj­­arða króna um síð­­­ustu ára­­mót.

Helsta eign sjóðs­ins er Upp­­haf fast­­eigna­­fé­lag slhf. og í ein­blöð­ungi sem nýverið var sendur á þá sem fjár­festu í sjóðnum kom fram að und­an­farið hafi nýtt teymi sér­­fræð­inga, auk utan­­að­kom­andi ráð­gjafa, unnið að mál­efnum sjóðs­ins. Upp­­haf stendur fyrir bygg­ingu á nokkur hund­ruð íbúðum á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu.

Í ein­blöð­ungnum kom einnig fram að breyt­ingar á stöðu sjóðs­ins skýrist af mörgum þátt­­um. Meðal ann­­ars hafi raun­veru­­leg fram­vinda til­­­tek­inna verk­efna verið ofmet­in. „Þá hefur fram­­kvæmda­­kostn­aður verið tals­vert yfir áætl­­unum á árinu. Fyrri mats­að­­ferðir tóku ekki að fullu til­­lit til fjár­­­magns­­kostn­aðar félags­­ins auk þess sem hann hækk­­aði veru­­lega með útgáfu skulda­bréfs (UPP­­H21 0530) í vor. Vænt­ingar um sölu­verð íbúða og þró­un­­ar­­eigna hafa einnig verið end­­ur­­metn­­ar.“

Staða Upp­hafs væri þannig að það glímdi „nú við lausa­­fjár­­­vanda en nýir stjórn­­endur hafa lagt fram áætlun um fram­­tíð félags­­ins þar sem m.a. er unnið að við­­bót­­ar­fjár­­­mögnun til að mæta lausa­­fjár­­vand­an­­um. Unnið er að útgáfu nýs for­­gangs­skulda­bréfs að fjár­­hæð 1 ma.kr. til að klára þær fram­­kvæmdir sem félagið hefur með höndum til að hámarka virði eigna. Gert er ráð fyrir að nið­­ur­­stöður við­ræðna um frek­­ari fjár­­­mögnun liggi fyrir um miðjan októ­ber 2019.“

Skulda­bréf seld með veði í eignum

Í júní var skulda­bréfa­út­boð sem tryggði sjóðnum 2,7 millj­arða króna klárað. Margir sem að því komu telja að það hafi farið fram á blekk­ing­ar­grund­velli, enda var eigið fé GAMMA: Novus þá sagt vera tæp­lega fjórir millj­arðar króna. ­Reyndar gekk alls ekki vel að selja útgáf­una til að byrja með. Við­mæl­endur Kjarn­ans úr fjár­mála­geir­anum segja að það hafi þurft að hækka vext­ina veru­lega til að því. Á end­anum urðu þeir að lág­marki 15 pró­sent og áttu að greið­ast í einni greiðslu með höf­uð­stólnum þann 30. maí 2021. 

Útgáfu­dagur skulda­bréfa­flokks­ins var 5. júní 2019. 

Skulda­bréfin voru seld með veði í fjöl­mörgum eign­um, meðal ann­ars öllu hlutafé í Upp­hafi fast­eigna­fé­lagi, Upp­hafi fast­eignum og fjórum öðrum félög­um. Auk þess voru ýmsar fjár­kröfum settar að veði og hlut­deild­ar­skír­teini í eigu Upp­hafs í Almenna leigu­fé­lag­inu eign­ar­halds­sjóð­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent