Efnahagsreikningur TM tæplega tvöfaldast við kaup á Lykli

TM umbreytist sem fyrirtæki við kaup á Lykli. Fyrirtækið fer þá inn á fjármögnunarmarkað.

tm
Auglýsing

Efna­hags­reikn­ingur Trygg­ing­ar­mið­stöðv­ar­innar (TM) tæp­lega tvö­fald­ast við kaup fyr­ir­tæk­is­ins á fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Lykli. Það hefur verið í eigu Klakka, áður Exista, en kaup TM á fyr­ir­tæk­inu, sem til­kynnt var um til kaup­hallar í dag, eru háð sam­þykki hlut­hafa­fund­ar, Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. 

Kaupin eru umfangs­mik­il, en heild­ar­út­lán Lyk­ils nema 32,3 millj­örðum króna og heild­ar­eignir yfir 40 millj­örð­um. Til sam­an­burðar námu heild­ar­eignir TM 40,8 um mitt þetta ár.

Kaup­verðið er 9,25 millj­arðar króna, og gera áætl­anir ráð fyrir að með tím­anum geti hagn­aður á hlut auk­ist um 20 til 30 pró­sent.

Auglýsing

Eigið fé Lyk­ils var 11,7 millj­arðar um mitt ár 2019, og því er kaup­verðið 0,79 sinnum eigið fé fyr­ir­tæk­is­ins. Hlut­fall kaup­verðs á móti áætl­uðu eigin fé í árs­lok 2019 er hins vegar 0,82 miðað við áætl­anir um afkomu Lyk­ils á árinu 2019, að því er kemur fram í til­kynn­ingu um kaup­in. 

Kaup­verðið verður greitt með hand­bæru fé og verður fjár­magnað með útgáfu á nýju hlutafé upp á þrjá millj­arða og sölu á eign­um. TM hefur tryggt sér láns­fjár­mögnun að fjár­hæð allt að þrjá millj­arða vegna við­skipt­anna til að við­halda sveigj­an­leika í stýr­ingu eigna­safns­ins, eins og það er orðað í til­kynn­ingu.

Kaupin á Lykli eru í sam­ræmi við stefnu TM og eft­ir­leiðis mun starf­semi félags­ins skipt­ast í þrjár jafn mik­il­vægar stoð­ir, vátrygg­ing­ar, fjár­mögnun og fjár­fest­ing­ar, að því er segir í til­kynn­ingu. „Tæki­færi eru til að bæta arð­semi af grunn­rekstri Lyk­ils. TM áætlar að hægt verði að ná fram tölu­verðum sam­legð­ar­á­hrif­um, bæði í tekjum og kostn­aði, fjölga fjár­mögn­un­ar­kostum og ná niður fjár­magns­kostn­aði. Þá er stefnt að því að gera fjár­magns­skipan hag­kvæm­ari,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Með kaup­unum verður TM mun stærra félag en t.d. helstu sam­keppn­is­að­ilar á trygg­inga­mark­aði, VÍS og Sjó­vá. Heild­ar­eignir VÍS námu 52 millj­örðum um mitt þetta ár og eigið fé rúm­lega 15 millj­örð­um. Hjá Sjóvá eru heild­ar­eignir 51,8 millj­arðar og eigið fé 15,6 millj­arð­ar. 

Með kaupum TM á Lykli verður til félag með heild­ar­eignir yfir 80 millj­örðum króna, og fjár­mögnun - þ.e. útlán og leigu­samn­ingar - verður stór hluti starf­sem­inn­ar. Þannig má segja að kaup TM séu hluti af hag­ræð­ingu á fjár­mála- og trygg­ing­ar­mark­aði, þar sem fyr­ir­tæki stækka og sam­einast, til að auka arð­semi.

Mark­aðsvirði TM er nú 20,1 millj­arð­ar. Mark­aðsvirði Sjó­vár er 20,8 millj­arðar og VÍS 19,7 millj­arð­ar. Öll félögin eru skráð á aðal­l­ista kaup­hallar Íslands.





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent