Neikvæð áhrif af aflagðri starfsemi og eignum til sölu á afkomu Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2019 mun nema um 3 milljörðum króna, að teknu tilliti til skatta, samanborið við 715 milljóna króna tap á öðrum ársfjórðungi.
Þetta kemur fram í tilkynningu bankans til Kauphallar, en bankinn er skráður á markað á Íslandi og í Svíþjóð.
Markaðsvirði bankans er nú 135 milljarðar króna, eða sem nemur um 0,69 prósent af eigin fé hans um mitt þetta ár, sem þá var 195 milljarðar. Þetta telst lágt verð í alþjóðlegum samanburði, en bankinn hefur sett sér það markmið að vera með 50 prósent kostnaðarhlutfall, þ.e. hlutfall rekstrarkostnaðar af tekjum, og 10 prósent arðsemi eiginfjár.
Bankinn hefur verið langt frá þessum markmiðum um langt skeið, og var meðal annars gripið til þess að segja upp 112 starfsmönnum hjá Arion banka og dótturfélaginu Valitor, vegna þessa. Benedikt Gíslason, sem tók við sem bankastjóri í sumar, sagði þegar tilkynnt var um uppsagnirnar að bankinn sparaði 1,3 milljarða á ársgrundvelli með hagræðingunni sem fólst í uppsögnunum.
Í tilkynningu eru nefndar ástæður fyrir afkomuviðvöruninni sem birtist í tilkynningunni:
„Aflögð starfsemi til sölu nær til eigna eða félaga sem bankinn hyggst selja á næstu mánuðum og flokkast í rekstrarreikningi neðan við hagnað af áframhaldandi starfsemi.
Aukið tap á fjórðungnum skýrist einkum af þremur þáttum:
Vegna erfiðra markaðsaðstæðna, m.a. lágs sílikonverðs á heimsmarkaði, niðurfærir Arion banki eignir Stakksbergs um 1,5 milljarð króna. Stakksberg er eignarhaldsfélag um sílikonverksmiðju í Helguvík sem er í söluferli. Unnið hefur verið að undirbúningi sölu verksmiðjunnar m.a. með umhverfismati og nýjum samningum við orkufyrirtæki.
Vegna erfiðleika í ferðaþjónustu telur Arion banki ástæðu til að niðurfæra eignir TravelCo um 600 milljónir króna. Frá yfirtöku bankans á rekstri ferðaskrifstofanna sem heyra undir TravelCo hefur undirbúningi og söluferli miðað áfram og stefnt er að sölu þeirra á komandi mánuðum.
Auknu tapi í starfsemi Valitor sem er einkum tilkomið vegna kostnaðar við fækkun starfsfólks og skipulagsbreytinga í lok september. Kostnaður við aðgerðirnar nam rúmlega 200 milljónum króna. Áhrif Valitor á aflagða starfsemi og eignir til sölu nema samtals um 900 milljónum króna,“ segir í tilkynningunni.