Magnús Harðarson skipaður nýr forstjóri Kauphallarinnar

Magnús Harðarsson tekur við af bróður sínum Páli sem forstjóri Nasdaq Iceland.

Magnús Harðarson
Auglýsing

Magnús Harð­ar­son hefur verið skip­aður nýr for­stjóri Nas­daq Iceland, eða Kaup­hallar Íslands. Magnús mun hefja störf nú þeg­ar.  Hann hef­ur ­starfað hjá Nas­daq síðan 2002, fyrst sem for­stöðu­maður við­skipta­sviðs og síðar sem for­stöðu­maður sölu og þjón­ustu. Hann hefur að auki verið stað­geng­ill for­stjóra Nas­daq Iceland frá árinu 2011. 

Magnús tekur við starf­inu af bróður sín­um, Páli Harð­ar­syni, sem hafði gegnt því frá árinu 2011. Páll var nýver­ið ­skip­aður fjár­­­mála­­stjóri evr­­ópskra mark­aða hjá Nas­daq (European Markets).

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands er haft eft­ir, Arm­intu Sala­dzi­ene,  aðstoð­ar­for­stjóra Nas­daq, að fyr­ir­tækið þekki mjög vel til starfa Magn­ús­ar, enda hafi það fengið að njóta krafta hans í fram­kvæmda­stjórn Nas­daq Iceland í mörg ár. „Magnús hefur gríð­ar­lega mikla þekk­ingu á efna­hags­legu umhverfi og reynslu  á fjár­mála­mark­aði  sem er nauð­syn­legt vega­nesti fram veg­inn, en hann hefur gegnt stóru hlut­verki í upp­bygg­ingu verð­bréfa­mark­aðar á Íslandi. Við erum viss um að þekk­ing hans og hug­myndir um áfram­hald­andi vöxt mark­að­ar­ins eigi eftir að verða verð­bréfa­mark­aði og atvinnu­lífi til góðs og hlökkum til að vinna með honum áfram í nýju starf­i.“

Auglýsing

Magnús er fæddur árið 1966. Áður en hann hóf störf hjá Nas­daq Iceland, þá Kaup­höll Íslands, var hann hag­fræð­ingur hjá Þjóð­hags­stofnun í þrjú ár og þar áður starf­aði hann sem efna­hags­legur ráð­gjafi. Hann hefur Ph.D. gráðu í hag­fræði frá Yale Uni­versity.

Magnús hefur gegnt starfi for­stjóra frá 1. októ­ber síð­ast­liðn­um, þegar bróðir hans Páll hóf störf sem fjár­­­mála­­stjóri evr­­ópskra mark­aða hjá Nas­daq (European Markets). Páll mun einn­ing sitja í fram­kvæmda­stjórn­ E­uropean Markets undir stjórn Björn Sibbern. Undir European Markets heyra allir mark­aðir Nas­daq í Evr­­ópu og á Norð­­ur­lönd­un­­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent