Fyrrverandi forsætisráðherra segir stjórnvöld hafa svikið þjóðina

Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, segir að íslenska þjóðin hafi verið svikin af stjórnvöldum um nýja stjórnarskrá í sjö ár.

Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra.
Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra.
Auglýsing

„Þjóðin hefur nú verið svikin af stjórn­völdum um þessa nýju stjórn­ar­skrá í sjö ár. Núver­andi rík­is­stjórn virð­ist ekki ætla að færa þjóð­inni þá heil­steyptu stjórn­ar­skrá sem fólkið bíður enn eft­ir.“ 

Þetta skrifar Jóhanna Sig­urð­ar­dótt­ir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í dag. Til­efni grein­ar­innar er að á morgun eru sjö ár liðin frá því að til­lögur stjórn­laga­ráðs um nýja stjórn­ar­skrá voru sam­þykktar í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. 

Vakti athygli víðs­vegar um heim

Jóhanna segir að það sem hafi verið sér­stak­lega eft­ir­tekt­ar­vert við stjórn­laga­ráð var að fólk úr ólíkum stéttum víðs­vegar að úr þjóð­fé­lag­inu hafi verið „al­gjör­lega ein­huga“ um þær til­lögur sem lagðar voru fyrir Alþingi. Auk þess hafi það aðeins tekið ráðið fjóra mán­uði að full­gera til­lögur að nýrri stjórn­ar­skrá sem Jóhanna segir að sé afrek. 

„Til­lögur stjórn­laga­ráðs vöktu athygli víðs­vegar um heim fyrir lýð­ræð­is­legt ferli og þær end­ur­spegl­uðu raunar nýtt Ísland. Leiða má að því líkum að þær hefðu breytt ýmsu í þjóð­fé­lag­inu m.a. í þeim spill­ing­ar­mál­um, sem upp hafa komið síð­ustu árin, hefðu þær kom­ist til fram­kvæmda,“ segir Jóhanna. 

Auglýsing

Enn fremur segir hún að það hafi ekki vant­aði vilja hjá rík­is­stjórn hennar til að lög­festa „þennan nýja sam­fé­lags­sátt­mála“ en að það hafi mis­tek­ist vegna „heift­úð­ugrar og óbil­gjarnar stjórn­ar­and­stöð­u“, þá sér­stak­lega Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks. 

„Þeir svifust einskis í nær for­dæma­lausu mál­þófi og beittu öllum brögðum til að koma í veg fyrir að nýr sam­fé­lags­sátt­máli, sem sam­þykktur hafði verið með tveim þriðju hluta greiddra atkvæða í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, næði fram að ganga. Lýð­ræðið var fótum troð­ið,“ segir Jóhanna og bætir við að til­raun Hæsta­réttar til að ógilda kosn­ingu til stjórn­lags­ráðs sé hneyksli blettur á rétt­ar­sög­unni.

Þjóðin líði ekki að tekið sé frá henni lýð­ræð­is­legt stór­virki

Enn fremur segir Jóhanna að svo virð­ist sem núver­andi rík­is­stjórn ætli ekki að færa þjóð­inni þá „heil­steyptu stjórn­ar­skrá“ sem fólkið bíði enn eft­ir. „Kannski á að sam­þykkja lít­inn hluta hennar á þessu kjör­tíma­bili m.a. um þjóð­ar­eign á landi. Hætta er á með Sjálf­stæð­is­flokk­inn við stjórn­völ­inn verði val­inn lægsti sam­nefn­ari og hald­lítið auð­linda­á­kvæð­i,“ segir Jóhanna. 

Hún þakkar að lok­um ­Stjórn­ar­skrár­fé­lag­inu, undir öfl­ugri for­ystu Katrínar Odds­dótt­ur, fyrir skel­egga og þrautseiga bar­áttu við að vinna mál­inu braut­ar­geng­i. „Ég er sann­færð um að þjóðin mun ekki líða að stjórn­mála­menn taki frá henni það lýð­ræð­is­lega stór­virki sem þessi ein­staki sam­fé­lags­sátt­máli er, þannig að nýtt Ísland verði að veru­leika,“ segir Jóhanna. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent