Brim hf. hefur gert samning um kaup á tveimur sjávarútvegsfyrirtækjum, Fiskvinnslunni Kambur hf. sem rekur útgerð og fiskvinnslu í Hafnarfirði og útgerðarfélaginu Grábrók ehf. sem einnig gerir út frá Hafnarfirði. Samanlagt kaupverð er 3,1 milljarður króna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu til Kauphallarinnar.
Þá segir jafnframt að fiskvinnslan Kambur geri út krókabátinn Kristján HF 100 sem hafi verið smíðaður í Trefjum hf. í Hafnarfirði á síðasta ári og sé búinn öllum nýjasta tækjabúnaði til veiða og aflameðferðar. Honum fylgi um 2.000 tonna krókaaflamark að mestu í þorski.
Þá reki fyrirtækið tæknivædda fiskvinnslu í eigin húsnæði við Óseyrarbraut í Hafnarfirði sem sé búin margvíslegum hátæknibúnaði meðal annars nýrri vinnslulínu og vatnsskurðarvél frá Völku hf. sem hafi verið tekin í notkun á síðasta ári. Kaupverðið nemi 2.3 milljörðum króna og verði greitt að hluta með hlutabréfum í Brimi hf. sem séu í eigu félagsins og nemi um 1 prósent af heildarhlutafé Brims að verðmæti um 835 milljónir króna.
Grábrók ehf. geri út krókabátinn Steinunni HF 108 sem hafi verið smíðaður árið 2007 en honum fylgi um 850 tonna krókaflamark að mestu í þorski. Kaupverðið er 772 milljónir króna, samkvæmt tilkynningunni.
„Samkomulagið er háð eðlilegum fyrirvörum meðal annars um fjármögnun, samþykki stjórnar Brims hf. og samþykki Samkeppniseftirlits og eftir atvikum annarra eftirlitsaðila.
Gangi kaupin eftir fer Brim yfir lögbundið kvótaþak í krókaaflamarki en hefur lögum samkvæmt 6 mánuði til að gera ráðstafanir sem koma félaginu undir það þak,“ segir í tilkynningunni.
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims hf., segir að með þessum kaupum séu þau að styrkja Brim sem alhliða fyrirtæki í sjávarútvegi. „Við viljum efla starfsemi Brims samhliða því að við höfum styrkt stöðu okkar í markaðssetningu og sölu á vörum félagsins á erlendum mörkuðum. Við bætum núna við okkur þorskveiðiheimildum, tæknivæddum vinnslueiningum og mannauð sem gerir félagið betur í stakk búið til að takast á við erlenda samkeppni í vinnslu íslenskra sjávarafurða. Kambur verður rekinn áfram í húsnæði félagsins sem sjálfstætt dótturfélag Brims en við stefnum að góðu samstarfi með aukna sérhæfingu að markmiði þegar fram líða stundir.“