Brim kaupir tvö sjávarútvegsfyrirtæki

Brim hf. hefur gert samning um kaup á tveimur sjávarútvegsfyrirtækjum en samanlagt kaupverð er 3,1 milljarður króna.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims.
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims.
Auglýsing

Brim hf. hefur gert samn­ing um kaup á tveimur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­um, Fisk­vinnsl­unni Kambur hf. sem rekur útgerð og fisk­vinnslu í Hafn­ar­firði og útgerð­ar­fé­lag­inu Grá­brók ehf. sem einnig gerir út frá Hafn­ar­firði. Sam­an­lagt kaup­verð er 3,1 millj­arður króna.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu til Kaup­hall­ar­inn­ar.

Þá segir jafn­framt að fisk­vinnslan Kambur geri út króka­bát­inn Krist­ján HF 100 sem hafi verið smíð­aður í Trefjum hf. í Hafn­ar­firði á síð­asta ári og sé búinn öllum nýjasta tækja­bún­aði til veiða og afla­með­ferð­ar. Honum fylgi um 2.000 tonna króka­afla­mark að mestu í þorski. 

Auglýsing

Þá reki fyr­ir­tækið tækni­vædda fisk­vinnslu í eigin hús­næði við Óseyr­ar­braut í Hafn­ar­firði sem sé búin marg­vís­legum hátækni­bún­aði meðal ann­ars nýrri vinnslu­línu og vatns­skurð­ar­vél frá Völku hf. sem hafi verið tekin í notkun á síð­asta ári. Kaup­verðið nemi 2.3 millj­örðum króna og verði greitt að hluta með hluta­bréfum í Brimi hf. sem séu í eigu félags­ins og nemi um 1 pró­sent af heild­ar­hlutafé Brims að verð­mæti um 835 millj­ónir króna.

Grá­brók ehf. geri út króka­bát­inn Stein­unni HF 108 sem hafi verið smíð­aður árið 2007 en honum fylgi um 850 tonna krókafla­mark að mestu í þorski. Kaup­verðið er 772 millj­ónir króna, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni.

„Sam­komu­lagið er háð eðli­legum fyr­ir­vörum meðal ann­ars um fjár­mögn­un, sam­þykki stjórnar Brims hf. og sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits og eftir atvikum ann­arra eft­ir­lits­að­ila.

Gangi kaupin eftir fer Brim yfir lög­bundið kvóta­þak í króka­afla­marki en hefur lögum sam­kvæmt 6 mán­uði til að gera ráð­staf­anir sem koma félag­inu undir það þak,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri Brims hf., segir að með þessum kaupum séu þau að styrkja Brim sem alhliða fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi. „Við viljum efla starf­semi Brims sam­hliða því að við höfum styrkt stöðu okkar í mark­aðs­setn­ingu og sölu á vörum félags­ins á erlendum mörk­uð­um. Við bætum núna við okkur þorsk­veiði­heim­ild­um, tækni­væddum vinnslu­ein­ingum og mannauð sem gerir félagið betur í stakk búið til að takast á við erlenda sam­keppni í vinnslu íslenskra sjáv­ar­af­urða. Kambur verður rek­inn áfram í hús­næði félags­ins sem sjálf­stætt dótt­ur­fé­lag Brims en við stefnum að góðu sam­starfi með aukna sér­hæf­ingu að mark­miði þegar fram líða stund­ir.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent