Curio hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands árið 2019 en Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir nýsköpunarráðherra afhenti verðlaunin á Nýsköpunarþingi í dag.
Stofnandi og framkvæmdastjóri Curio er Elliði Hreinsson, en félagið er með 49 starfsmenn í dag, þar af 42 á starfsstöðvum í Hafnarfirði og á Húsavík.
Curio er nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að þróun fiskvinnsluvéla sem auka nýtingu og skila betri afurð í vinnslu á bolfiski í afhausun, flökun og roðflettingu, ásamt því að hafa öryggismál og þrif að leiðarljósi.
Félagið selur 85 prósent af vélum sínum á erlendan markað og þá helst í Noregi, Bretlandi, Bandaríkjunum, Frakklandi og Póllandi.
Þróunarstarf félagsins hefur skilað sér í nýjum og áhugaverðum vinnsluvélum, sem hafa skilað félaginu mikilli veltuaukningu á undanförnum árum. Síðari ár hefur félagið lagt sífellt meiri áherslu á þróunarstarf og eru starfsmenn félagsins að vinna að þróun á nýrri vélalínu fyrir lax og bleikju. Prófanir eru þegar hafnar og lofa mjög góðu.
Fyrstu vélar undir vörumerkinu Curio voru framleiddar af Gullmolar ehf. árið 2007 og var fyrirtækið Curio ehf. stofnað árið 2013 og tók yfir þróun og framleiðslu vélanna.
Í rökstuðningi dómnefndar segir að Curio hafi leitt öflugt þróunarstarf sem snýr að vinnslu sjávarafurða. „Félagið var framan af ekki áberandi í nýsköpunarsamfélaginu en þróunarstarf félagsins hefur vaxið jafnt og þétt undanfarin ár. Félagið hlaut m.a. árið 2018 tveggja milljón evra styrk í nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins innan Horizon 2020 og styrk frá Tækniþróunarsjóði vorið 2019 fyrir nýrri tölvustýrðri klumbruskurðarvél. Það er mat dómnefndar að Curio hafi þróað framúrskarandi afurðir og leggi mikla áherslu á áframhaldandi þróun véla sem hafi alla burði til að ná árangri á markaði á næstu árum og sé vel að verðlaununum komið,“ segir í rökstuðningi.
Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt af Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, til fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu, sem byggð er á rannsóknar- og nýsköpunarstarfi og náð hefur árangri á markaði.
„Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á þeim mikilvægu tengslum sem eru á milli rannsókna og þekkingaröflunar og aukinnar verðmætasköpunar í atvinnulífinu. Verðlaunagripurinn er stytta af frjósemisgoðinu Frey eftir Hallstein Sigurðsson myndhöggvara. Við val á verðlaunahafa er litið til þess hvort um er að ræða sprotafyrirtæki, hvort það sé byggt á nýrri tækni og hugmynd og hafi þekkingu og reynslu til að sinna framúrskarandi þróunarstarfi. Þá er lagt mat á virðisauka afurða og hvort fyrirtækið hafi náð árangri á markaði. Metið er hvort líkur séu á að fyrirtækið haldi velli og hvort stjórnun nýsköpunar sé til eftirbreytni. Að lokum er metið hvort fyrirtækið sé hvatning fyrir aðra að feta sömu slóð,“ segir í tilkynningu.
Kjarninn heimsótti Elliða árið 2015 þegar hann var að byggja fyrirtækið upp. Myndband af heimsókninni má finna hér.