Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað nýja fjölmiðlanefnd til næstu fjögurra ára. Skipunartímabil nefndarinnar er frá 1. september á þessu ári til 31. ágúst 2023. Þetta kemur fram á vefsíðu nefndarinnar.
Einar Hugi Bjarnason hæstaréttarlögmaður er formaður nýrrar fjölmiðlanefndar en hann er skipaður af ráðherra án tilnefningar. María Rún Bjarnadóttir lögfræðingur er varaformaður og er hún tilnefnd af Hæstarétti. Finnur Beck héraðsdómslögmaður og forstjóri HS orku er nýr nefndarmaður en hann er tilnefndur af Hæstarétti og Róbert H. Haraldsson, prófessor í heimspeki og sviðsstjóri kennslusviðs Háskóla Íslands, er tilnefndur af samstarfsnefnd háskólastigsins.
Varamenn eru Hulda Árnadóttir hæstaréttarlögmaður, Marteinn Másson hæstaréttarlögmaður, Erla Skúladóttir héraðsdómslögmaður og Birgir Guðmundsson, dósent í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri.
Á vef fjölmiðlanefndar kemur fram að Einar Hugi Bjarnason, formaður nefndarinnar, hafi lokið embættisprófi í lögfræði Háskóla Íslands árið 2005, öðlaðist réttindi sem héraðsdómslögmaður ári seinns og réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti Íslands árið 2012.
Einar Hugi sé einn af eigendum Lögfræðistofu Reykjavíkur ehf. Hann hafi setið í stjórnum fjölmargra félaga um lengri og skemmri tíma oftast tengt lögmannsstörfum.
Frá árinu 2013 hafi Einar Hugi sinnt stundakennslu við lagadeild Háskóla Íslands. Hann hafi einnig setið í ýmsum nefndum á vegum hins opinbera. Hann hafi enn fremur komið að gerð frumvarps til laga um styrki til einkarekinna fjölmiðla sem lagt verður fyrir á 150. löggjafarþingi Alþingis 2019 til 2020.