Samkvæmisleikur að geta til um stefnu stjórnvalda í bankamálum

Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, var málshefjandi umræðu um sölu á ríkisbönkunum. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, minnti hana á að hún hefði mælt fyrir frumvarpi sem ráðherra um sölu á bönkum.

Oddný Harðardóttir
Auglýsing

Oddný Harð­ar­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sagði stefnu stjórn­valda í málum sem tengj­ast sölu á rík­is­bönk­unum óljósa, og það væri hálf­gerður sam­kvæm­is­leikur að geta sér til um hvernig hún væri. 

Hún sagði Sjálf­stæð­is­flokk­inn tala fyrir mik­il­vægi þess að selja eign­ar­hluti í rík­is­bönk­um, til að minnka áhættu, en þannig hátt­aði nú samt til að ríkið myndi alltaf bjarga kerf­is­lægt mik­il­vægum bönkum ef þeir lentu í vand­ræð­um. Þannig að áhættan væri alltaf hjá rík­inu hvernig sem eign­ar­haldið væri. 

Sagði hún að það ætti frekar að ein­blína á að skilja betur að áhættu­sækna starf­semi og hefð­bundna við­skipta­banka­starf­semi. „Ríkið mun hvort sem er koma kerf­is­lega mik­il­vægum bönkum til bjargar fari þeir á hausinn,“ sagði Odd­ný.

Auglýsing

Íslenska ríkið á Íslands­banka að fullu og Lands­bank­ann að nær öllu leyti, eða rúm­lega 99 pró­sent. Eigið fé Íslands­banka er um 175 millj­arðar og eigið fé Lands­bank­ans um 240 millj­arð­ar. Sam­an­lagt eigið fé rík­is­bank­anna er því 415 millj­arðar króna. 

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.

Sé mið tekið af mark­aðsvirði Arion banka í kaup­höll­inni þessi miss­er­in, þá nemur mark­aðsvirði bank­anna 280,9 millj­örðum króna. Mark­aðsvirði Arion banka er um 132 millj­arðar króna, eða sem nemur um 0,67 sinnum eigið fé hans um mitt þetta ár, sem var 195 millj­arð­ar. 

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, svar­aði Odd­nýju og sagði orð hennar nú skjóta skökku við. Hún hefði sagt lagt fram frum­varp á Alþingi sem fjár­mála­ráð­herra árið 2012, þar sem mælt var fyrir sölu á rík­is­bönk­un­um. „Það eru sex ár síðan hátt­virtur þing­maður mælti fyrir frum­varp­in­u,“ sagði Bjarn­i. 

Hann sagði enn fremur að það kæmu nokkrar leiðir til grein við sölu á bönk­un­um, en áður en ákveðið verði með hvaða hætti ætti að stíga þessi skref, þyrfti að leita ráð­gjafar frá Banka­sýslu rík­is­ins. For­stjóri hennar er Jón Gunnar Jóns­son og stjórn­ina skipa Lárus L. Blön­dal, stjórn­ar­for­mað­ur, Mar­grét Krist­manns­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri, vara­for­maður og Vil­hjálmur Bjarna­son, lekt­or. 

Upp­fært: Það frum­varp sem Oddný Harð­ar­dóttir lagði fram árið 2012 tók til umgjarðar um sölu á hlutum rík­is­ins í bönk­um, en var ekki lagt fram til að selja eign­ar­hluti í bönk­un­um. Á þeim tíma átti ríkið eign­ar­hlut í Arion banka, 13 pró­sent, sem nú hefur verið seld­ur, og Lands­bank­ann, en Íslands­banki var í eigu kröfu­hafa.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent