Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands, telur að stjórn Íslandsbanka eigi að hlutast til um það að bankinn setji sér opnar og gagnsæjar reglur um notkun auglýsingafjár. Þannig að hafið sé hafið yfir allan vafa að þar ráði hlutlægni ferðinni.
Þetta kemur fram í athugasemd formannsins vegna stefnu Íslandsbanka um að auglýsa ekki í fjölmiðlum með áberandi kynjahalla.
Hjálmar segir að ekki verði undan því vikist að krefjast þess að Íslandsbanki gefi út „afdráttarlausa“ yfirlýsingu um að hann muni ekki láta fjölmiðla með afgerandi kynjahjalla gjalda þess að þeir séu skrifaðir fyrir tiltekna markhópa í „fjölbreytta kynjaða samfélagi“. Hann nefnir þar dæmi um Gestgjafann, Vikuna, fotbolta.net, Smartland og Fiskifréttir.
„Hvernig öðruvísi má ávinna það traust sem glatast hefur með þessum ótrúlega vanhugsuðu fyrirætlunum þriðju stærstu fjármálastofnunar þjóðarinnar, sem hafa ekkert með jafnrétti að gera?“spyr Hjálmar.
Þá spyr hann jafnframt hvort að þessi stefna hafi verið borin undir stjórn bankans. „Það hlýtur einnig að verða að spyrja þess hvort sú afdrifaríka stefna að gera tilraun til að hafa áhrif á umfjöllun fjölmiðla með hótunum um að auglýsa ekki í þeim, hvort sem það er vegna jafnréttismála, loftslagsvár, heimsfriðar eða annarra góðra mála, sem við öll viljum leggja lið, hafi verið borin undir stjórn bankans og samþykkt þar?“
Hann segir enn fremur að ekki sé hægt að finna í fljótu bragði slíka jafnréttisstefnu á heimasíðu bankans. „Er það ekki lágmarkið að banki í almannaeigu birti stefnu sína í þessum málum, svo hægt sé að rýna hana og jafnvel gagnrýna? Eða er það virkilega svo að þessu sé slegið fram í amstri dagana að óhugsuðu máli?“
Að lokum segir Hjálmar að stjórn Íslandsbanka hljóti að láta málið til sín taka og brýna fyrir starfsmönnum sínum að valdi fylgi ábyrgð. „Stjórn bankans hlýtur einnig að hlutast til um það að bankinn setji sér opnar og gagnsæjar reglur um notkun auglýsingafjár, þannig að það sé hafið yfir allan vafa að þar ráði hlutlægni ferðinni. Ég vil trúa því að þannig hafi það verið til þessa,“ segir Hjálmar.
Í síðustu viku samþykkti stjórn Blaðamannafélags Íslands ályktun vegna áforma Íslandsbanka.